En fyrst verður fjallað um vantraust og stífni í samskiptum ríkis og sveitarfélaga með Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og nýkjörnum formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Eyjólfi Ármannssyni, ráðherra sveitarstjórnarmála.
Formaður Heimilis og skóla, Sigvaldi Egill Lárusson, hélt því fram nýlega að kjarabarátta kennara hefði komið niður á menntun barnanna okkar. Hann ræðir málið við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambandsins.
Svo kemur Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir lögmaður í lokin sem skrifaði pistil þar sem hún benti meðal annars á að enski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe eigi orðið hátt í helming af byggilegu landi í Norðausturkjördæmi og sé orðinn fjórði stærsti landeigandinn á Íslandi, á eftir ríkissjóði, sveitarfélögum og þjóðkirkjunni.