Bæði Isavia innanlandsflugvellir ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vara við áformum sem felast í tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hinn svokallaða Loftleiðareit. Reiturinn er beint austan meginn við Reykjavíkurflugvöll og þær byggingar á reitnum sem næstar eru flugvvellinum eru um 100-200 metrum frá næstu flugbrautum. Tillagan gengur út á að á reitnum verði byggður upp svokallaður lífsgæðakjarni þar sem m.a. verði að finna hjúkrunarheimili og grunn- og leikskóla.
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar