„Það besta sem ég hef upplifað“

Glúmur Baldvinsson, alþjóðastjórnmálafræðingur, segir það vanmetið að gera ekki neitt og njóta þess einfaldlega að vera einn heima. Í Facebook-færslu, sem vakið hefur mikla kátínu, sinni lýsir hann því hvernig sú kyrrð geti verið hin mesta heilun.
„Að dvelja einn með sjálfum sér getur verið ávanabindandi og það bara að hanga heima aleinn og háma í sig súkkulaði er eitthvað það besta sem ég hefi upplifað,“ skrifar Glúmur.
Hann segist kunna vel að meta að þurfa hvorki að gera neitt né fara út úr húsi, heldur geta notið þess að lesa bók eða horfa á bíómynd í algjörri kyrrð.
Glúmur telur að fólk leggi of mikla áherslu á að vera sífellt að gera eitthvað.
„Ég held að sú árátta fólks að þurfa að gera eitthvað endalaust sé stórlega ofmetin,“ skrifar hann.