Tímabundið 2,5% þak á hækkun leigu?
Hvers vegna ætti einn stærsti orsakavaldur verðbólgunnar að vera undanþeginn mótvægisaðgerðum?
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur lagði mikið af mörkum til að halda kjarasamningum út tímann, þrátt fyrir forsendubrest þeirra. Það skipti öllu máli og ber að þakka.
Hluti af framlagi ríkisstjórnarinnar og Samtaka sveitarfélaga var skuldbinding um að takmarka hækkanir þjónustugjalda við 2,5% á næsta ári. Þetta mun hjálpa til við að ná verðbólgu niður.
En hvers vegna var ekki sett sama kvöð á hækkun leigu fyrir íbúðir og atvinnuhúsnæði?
Ástæða þess er líklega sú, að hluti af pakka ríkisstjórnarinnar var innleiðing leigubremsu með hámarki á árlegar hækkanir leigu í takti við vísitölu neysluverðs, sem verður mikilvægt skref þegar hún kemur til framkvæmdar. En við þurfum að bíða að minnsta kosti til 1. júlí 2027 til að það verði.
Í millitíðinni er hætta á að leigusalar muni grípa til mikilla hækkana áður en leigubremsan tekur gildi.
Leigusala verði hluti af þjóðarsáttinni
Til að koma í veg fyrir það ætti ríkisstjórnin strax að draga leigusöluna inn í þjóðarsáttarsamkomulagið um að takmarka verðhækkanir á næsta ári við 2,5%. Það mætti vera tímabundin kvöð eða bann þar til frumvarpið um leigubremsu tekur gildi.
Leiga hefur almennt hækkað langt umfram annað verðlag á Íslandi og hún vegur nærri fjórðungi í vísitölu neysluverðs. Leigan er stærsti einstaki liður verðlagsvísitölunnar, mun stærri en notendagjöld ríkis og sveitarfélaga. Það er því mun meiri ástæða til að setja 2,5% þak á hækkun leigu en á hækkanir notendagjalda fyrir opinbera þjónustu.
Ofurgróði leigusala gefur svigrúm
Hagnaður leigufélaganna hefur verið jafnvel meiri en hagnaður bankanna undanfarið. Það hlýtur að teljast „ofurgróði“ eða jafnvel „ofsagróði“.
Leigutekjur HEIMA fasteignafélags hafa hækkað um 16–18% það sem af er árinu 2026 (í rúmlega 5% verðbólgu). Heimildin hefur áður fjallað um óvenju mikinn gróða leigufélaga (sjá hér og hér).
Það er því mikið svigrúm hjá leigusölum til að hægja á gróðasókninni og láta duga að sigla í takti við samfélagið.
Hvers vegna skyldu þeir vera undanþegnir átaki þjóðarinnar til að lækka verðbólguna, þegar þeir eru einn stærsti orsakavaldur hennar?
Fordæmi Dana
Fordæmi fyrir þessu má sækja til ríkisstjórnar Mette Frederiksen í Danmörku.
Þegar verðbólga hækkaði úr 1,9% í um 8% í Danmörku, í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu árið 2022, setti ríkisstjórn Mette Frederiksen tímabundið þak á leyfða árshækkun leigu við 4%, eða um helming af því sem verðbólgustigið var þá. Þetta gilti í 2 ár.
Verðbólgan lækkaði niður í um 3% strax árið eftir. Þó fleira hafi komið til er ljóst að leigubremsa getur verið mjög skjótvirkur og öflugur hemill á almennar verðhækkanir og verðbólguvæntingar, sérstaklega hér á landi þar sem leiga er mjög stór liður í verðlagsvísitölunni.
Fyrst Danir gátu gert þetta þá eigum við að geta það.
Minna vægi verðtryggingar
Ríkisstjórnin stefnir líka að því að draga úr vægi verðtryggingar í samfélaginu. Það er gott markmið.
Frumvarpið um leigubremsu í fyrstu útgáfu leyfir hins vegar árlegar hækkanir leigu í takti við hækkun neysluvísitölu (að leiguhækkunum meðtöldum). Þó það sé mikil framför að taka fyrir hækkanir leigu umfram vísitöluna þá leyfir frumvarpið samt verðtryggingu leigu. Það lokar heldur ekki alveg fyrir skaðlegar víxlhækkanir leigu og vísitölu verðlagsins.
Leiðin til að taka fyrir víxlhækkunina og um leið draga umtalsvert úr vægi verðtryggingar væri að setja í frumvarpið hámark leyfilegra árlegra hækkana leigu við vísitölu neysluverðs án húsnæðisliðarins.
Þá myndi leiga hækka í takti við annað verðlag (en ekki í takti við annað verðlag plús leigu).
Með því næði ríkisstjórnin tvöföldu markmiði – og tvöföldum árangri í lækkun verðbólgu til framtíðar.
Þetta er það sem á ensku myndi kallast „low hanging fruit“ („auðsóttur ávinningur“) og á íslensku að „slá tvær flugur í einu höggi“!
Það væri mjög snjallt og snöfurmannlegt hjá ríkisstjórninni að gera þetta.
Höfundur er prófessor emeritus við HÍ og starfar sem sérfræðingur hjá Eflingu.