„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir

„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir

„Ég held að maður megi semja svona við móður sína” - Vísir

Guðrún er stórættuð kona, afar hennar eru Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra og Bjarni Benediktsson eldri – forsætisráðherra. Hún fer yfir ýmsa forvitnilega fleti á útgáfubransanum, segir af mjólkurkúm og lukkudýrum.

Klippa: Í bóli Bjarnars - Guðrún Vilmundardóttir

„Starfsafmæli? Bara hárrétt. Ég byrjaði sem sagt hjá Bjarti bókaútgáfu árið 2006 og tíu árum síðan, 2016, stofnaði ég Benedikt. Þannig að Benedikt er tíu ára í ár og starfsafmælið er tuttugu.“

Snæbjörn Arngrímsson rithöfundur sem stofnaði Bjart er goðsögn í íslenskum útgáfubransa, hugsjónamaður en það hljóp á snærið hjá honum að gefa út bækur sem fáir höfundar höfðu séð möguleikana í, um galdradrenginn Harry Potter og svo fáeinum árum síðar bækur Dan Brown sem skrifaði Da Vinci lykilinn. Skyndilega var Bjartur orðinn stór.

Hvernig stóð á því að þú byrjaðir hjá Bjarti á sínum tíma? Hvað gerðist?

„Ég var að vinna í Borgarleikhúsinu. Ég er menntaður leikhúsfræðingur og var dramatúrg þar. Á þeim tíma gáfum við leikritin út á litlum bókum og hann Snæbjörn Arngrímsson hjá Bjarti braut þær um fyrir okkur. Þannig að ég kynntist honum og starfaði með honum. 

Hann vissi sem sagt að ég var menntuð í Frakklandi, talaði frönsku og einhvern tímann hafði hann keypt réttinn að franskri bók. Hann er mjög skemmtilegur maður, léttleikandi og var að tala um titil bókarinnar og sagði: „Þú kemur með góðan íslenskan titil fyrir mig hér á núinu, þá færðu að þýða þessa bók.“

Það var sem sagt belgíska bókin Undrun og skjálfti eftir Amélie Nothomb sem kom út á Íslandi 2002.

„Ég stakk upp á þeim titli, honum fannst hann nógu góður þannig ég byrjaði að þýða.“

Guðrún þýddi nokkrar bækur meðfram störfum sínum í leikhúsinu og nokkur leikrit einnig. „Þegar ég var búin að vera sjö ár í leikhúsinu, og það voru frábær, góð sjö ár, þá var orðið gott þar og ég sem sagt fékk starf hjá Bjarti. Þegar þetta er höfðu ævintýrin með Dan Brown og Harry Potter þegar átt sér stað.

Nafnið Benedikt er í fjölskyldunni

Guðrún segir að hún hafi átt skemmtilega daga með Snæa í Bjarti en svo sameinuðust Bjartur og Veröld. Pétur Már Ólafsson var eigandinn að Veröld og síðar keypti hann Bjart.

„Við Snæi störfuðum aldrei saman á skrifstofu af því að akkúrat þegar ég byrjaði þar vorið 2006 þá flutti hann til Danmerkur af því að þá var hann líka kominn með Hr. Ferdinand. Þá var Skype mikið notað – við áttum okkar samskipti sem sagt um Skype. Þannig að þó að við ynnum mikið, ættum gott samstarf, var það aldrei á sömu skrifstofunni.“

En hvað verður svo til þess að þú stofnar Benedikt?

„Ég átti mjög góð ár hjá Bjarti, en þau voru orðin tíu og kannski ekki mikill framgangur framundan, eða þetta var bara orðið gott, myndi ég segja. Þannig að hérna, ég tók skrefið.“

Þetta hefur ekki verið þannig að Pétur Már hafi bolað þér út?

„Ég myndi ekki orða það þannig en hann var kannski búinn að fá nóg af mér. Kannski var ég kannski orðin svona aðeins eins og heimaríkur hundur en ég átti náttúrulega ekki fyrirtækið. Nei, nei, þetta var bara svona og ég held að allir hafi verið glaðir með það skref.“

Af hverju Benedikt?

„Benedikt, já. Mér fannst alltaf notalegt að vinna hjá Bjarti. Mér fannst það einhvern veginn eins og við værum tvö í þessu þannig að ég var strax viss um að ég vildi svona mannsnafn. Benedikt er náttúrulega söguhetjan í Aðventu Gunnars Gunnarssonar þar sem hann er svona góði hirðirinn, mér finnst ekki verra að vera góður hirðir. 

Guðrún er ánægð með sína höfunda og segir að Sigríður Hagalín sé við að verða alþjóðleg stórstjarna.vísir/anton brink

Aðventa er ein fyrsta bókin sem nær gífurlegum vinsældum erlendis, sem sagt í Ameríku, og komst meira að segja inn í bókaklúbb í Ameríku. Benedikt er þægilegt nafn að bera fram á erlendum tungum. Ég hef mikinn áhuga á erlendu samstarfi, það er alls konar svona í því. Það fylgir svolítið í útgáfunni, ég myndi ekki segja að þetta séu stíf vísindi en maður er svolítið hjátrúarfullur og tekur til alls konar atriða. Svo er þetta nafn sem mér þykir mjög vænt um líka að það er í fjölskyldunni.“

Allir sem skipta máli lesa blaðið

Mér hefur alltaf fundist bókaútgáfa gífurlega spennandi bransi og ég hef sem blaðamaður fylgst lengi með honum. En við störfuðum nú saman á sínum tíma?

„Aldeilis, á Alþýðublaðinu.“

Já, og við Hrafn Jökulsson ritstjóri vorum spældir með að þú skyldir ekki láta meira til þín taka á þeim vettvangi, en þú hefur fengið alveg nóg?

„Ég var náttúrulega bara sumarstarfsmaður þarna í tvö ár. Ég var einmitt að hugsa um það á leiðinni af því að ég var að koma að hitta þig. Vissir þú einhvern tímann hvað upplagið var á þessu blaði sem við unnum? Ég man nefnilega eftir því núna, en í síðari tíð hef ég mikinn áhuga á upplagstölum og dreifingu, og ég spurði Hrafn einhvern tímann og hann svaraði mér: „Veistu, það lesa allir blaðið sem máli skipta.“

Akkúrat. Smátt er fagurt. Hrafn var stórskemmtilegur maður og maður saknar hans. En þið mæðist í mörgu þarna á Benedikt, þið eruð með hlaðvarp. Auðvitað. Velflestar bókaútgáfur eru komnar með hlaðvarp?

„Já. Ég held að við höfum verið frumkvöðlar á því sviði en það skiptir ekki máli. Einar Kári, samstarfsmaður minn, á heiðurinn af því. Þetta er hlaðvarpið Sólin. Við fáum mikið hrós fyrir. Hann hefur tekið viðtöl við marga höfunda og Helga Ferdinandsdóttir, samstarfskona mín, sömuleiðis. 

Guðrún á skrifstofu Benedikts. Hún segir útgáfuna frumkvöðul á sviði hlaðvarpa, en í Sólinni er fjallað um bækur forlagsins; menningar- og kynningarefni.vísir/anton brink

Núna höfum við verið að prófa að láta höfunda tala saman. Þetta er skemmtilegt. Hlaðvarpið þjónar sem kynningarefni fyrir bækurnar okkar og er náttúrulega bara menningarefni.“

En það er ekki hægt að flokka ykkur sem fjölmiðil eða hvað?

„Enn eitt jarðsprengjusvæðið. Já, frænka mín, hún Ólöf Skaftadóttir, er víst orðin fjölmiðill. Eða hefur eitthvað nýtt gerst í því máli? Hún og vinkona hennar, Kristín Gunnars?

Þær eru grjótharðar á því að vilja ekki láta stimpla sig sem fjölmiðil eða fjölmiðlafólk?

„Nei, mér finnst það bara svolítið hlægilegt. Ég náttúrulega óskaði frænku minni til hamingju, ég hélt að þetta væri bara mikill heiður að vera skyndilega orðin fjölmiðill. En mér skilst að það fylgi því ýmsar flækjur þannig að þetta sé ekki neitt skemmtimál.“

Nei, það eru engar skemmtigöngur hér.

„Það er víst alveg ábyggilegt. Nei. Ég hélt þetta væri grín. Ég hef nokkra einstaklinga í huga sem ég held að yrðu mjög upp með sér að vera skyndilega fjölmiðill.“

Margrét Bjarnadóttir þegar orðin „Svarti hesturinn“

Á heimasíðu Benedikts má sjá lista yfir höfunda Benedikts og þar getur að líta afar tilkomumikinn lista yfir Benedikts-höfunda: Hjónin Jón Kalman og Sigríður Hagalín hans kona, Auður Ava, Fríða Ísberg, Bragi Ólafsson, Dagur Hjartarson, Brynja Hjálmsdóttir, Kari Ósk sem mér finnst vera alveg stórkostlegt ljóðskáld…

„Hún er frábært ljóðskáld. Hennar fyrsta ljóðabók er komin út hjá okkur en hún hefur verið að þýða fyrir okkur, Undir þér jörðin. Frábær bók.“

Já, það mætti áfram þylja. Og svo er það nýjasta stórstjarnan hún Margrét Bjarnadóttir, sem var að fá þvílíka rífandi dóma í Kiljunni, þær Ingibjörg Iða og Kolbrún Bergþórsdóttir héldu ekki vatni, bókstaflega, hágrátandi.

„Varkár. Já, þetta er hennar fyrsta bók. Eða, já, fyrsta skáldminningarsaga hennar. Hún hefur áður gefið út lítil hver, en já, hennar fyrsta bók hjá okkur þannig að hún er nýr höfundur hjá Benedikt. Þetta er stutt og snjöll og mjög áhrifarík saga. Af hennar glímu við að reyna að eignast börn. En hún segir svo fallega frá þessu, þetta er náttúrulega erfitt efni en hún léttir það með gamansögum eða svona léttum viðburðum. 

Bók sem Margrét Bjarnadóttir sendi frá sér fyrir skömmu hefur slegið rækilega í gegn. Benedikt gefur bókina út.vísir/anton brink

Við vissum að þetta væri frábær bók en það er alveg ótrúlegt hvað hún snertir fólk djúpt. Og hún er uppseld hjá okkur í bili. Mér hefur alltaf þótt pínulítið hlægilegt þegar útgefendur monta sig af því að bók sé uppseld, því það þýðir einfaldlega að það var prentað of lítið af henni. En þar sem þetta er hennar fyrsta bók hjá okkur þá prentuðum við hóflegt upplag. Við vissum alltaf að við myndum prenta meira. Við vissum bara ekki hversu mikið meira og ætluðum því að þreifa aðeins á markaðnum áður en við prentuðum næsta upplag. Við gátum ekki látið okkur sko dreyma um að hún seldist upp um miðjan október.“

Forlagið lang lang stærst

Guðrún lét prenta tæplega þúsund eintök en nú liggur fyrir að það var vanmetið hjá útgefandanum.

„En við fáum meira með flugi í byrjun næstu viku. Og svo farminn, skipsfarminn, vikuna þar á eftir. En erum alveg lent núna. Við erum ekki bara að tala um uppselda hjá útgefanda, það er búið að flytja á milli búða og allt, hún er bara ófáanleg.“

En úr rætist strax í næstu viku.

„Þetta eru stórkostleg tíðindi og frábær bók og við erum svo glöð Margréti til handa.“

Hérna, hvað eru þetta margar útgáfur á Íslandi sem eru að bítast um hituna?

„Já, þær eru fjölmargar. Og Forlagið er lang lang stærst?“

Ennþá?

„Enn þá og verður um nokkra hríð. Fjölmörg forlög sameinuðust undir einn hatt. Síðast voru það náttúrulega Edda útgáfa sem var með mörg „inprint“ undir sér og JPV … og svo eru þau með allan baklistann. Bara til útskýringar þá eru svona 20 manns sem vinna hjá Forlaginu. Svo koma næstu útgáfur með kannski þrjá starfsmenn. Svo er fjöldi útgáfa sem er einyrki. Bara til að útskýra stærðarmuninn á þessu. Já, þannig að Forlagið er náttúrulega bæði með mestu útgáfuna og svo eiga þeir náttúrulega alla baklistana vegna þess hversu lengi þeir hafa verið að.“

Útgáfubransinn breyst mikið

Útgáfubransinn hefur breyst talsvert, er það ekki rétt? Einhvern tíma var þetta meira „Monopoly“, fimm útgáfur kannski?

„Já, þetta er svolítið merkilegt. Við erum nokkrar nýjar. Við stofnuðum Benedikt 2016. Angústúra var stofnuð sama ár, og ég man að Drápa var stofnuð sama ár. Kannski var komin einhver svona þreyta í bland. Forlagið var búið að vera langstærst svo lengi, það einhvern veginn svona lá fyrir að það yrðu einhverjar breytingar þar.“

Guðrún segist ekki hafa svör við því hvers vegna þessar breytingar hafi orðið og líklega hafi ný tækni haft sitt að segja.

„Þetta er orðið einfaldara að einhverju leyti, fólk getur brotið um sjálft og fengið hjálp við kápur, ég veit það ekki. Kannski er einfaldara að stofna útgáfu í dag heldur en var. Já. Tæknibreytingarnar hafa náttúrulega breytt einhverju. Maður hefði þurft að kaupa dýrt bókhaldskerfi og gera einhvern veginn allt það en ég gat keypt það á netinu, við gátum gert heimasíðuna sjálf og svo framvegis. Já, ég get ímyndað mér að það sé svona ein af ástæðunum fyrir svona breyttu landslagi í þessu.“

En varðandi tekjumódelið, til að mynda listamannalaunin, þá hljóta þau að vera svolítið mikilvægur liður í rekstri útgáfu, eða hvað? Ríkið borgar allavega hluta höfundalauna?

„Ja, sko, það er einfaldlega þannig að höfundar fá prósentur af seldum eintökum. Það eru ekki allir, því miður, sem fá listamannalaun. Það þarf að sækja um þau á hverju ári og þau eru verkefnatengd. Auðvitað skiptir það okkur rosalega miklu máli að okkar höfundar fái þessi laun og geti helgað sig ritstörfunum af því að það er svo á okkar litla markaði að það eru ákaflega fáir sem geta lifað af sölulaunum bóka eingöngu.“

Þeir væru teljandi á fingrum annarrar handar.

„Já. Þar skiptir meira máli að komast á markað erlendis, að bækurnar séu þýddar á erlend tungumál og þaðan geta komið góð laun.“

Sigga Hagalín að verða stórstjarna

Og hafa margir höfundar á þínum vegum verið þýddir á erlend tungumál?

„Já, við höfum verið mjög heppin með það. Það er í rauninni ekki á mínum vegum, en já, okkar höfundar flestir.

„Ég hafði mjög mikinn áhuga á erlendum samskiptum og erlendri sölu þegar ég byrjaði með fyrirtækið. En réttindasala er bara annað mál. Þegar Eyland, Önnu Sigríðar Hagalín, kom út hjá okkur árið 2016 tókst mér að selja mér réttinn til Frakklands og Þýskalands í Frankfurt áður en bókin kom út hér heima. Við vorum ákaflega glaðar og stoltar yfir því. Þetta eru sem sagt stóru bókamarkaðirnir hérna eða bókamessurnar sem við köllum eru sem sagt í Frankfurt á haustin og London um vorið. 

Guðrún segir þá höfunda sem geti lifað af bókum sínum með sölu á Íslandi teljandi á fingrum annarrar handar.visir/anton brink

Svo ætlaði ég að halda áfram sigurgöngunni í London þá um vorið. Þá áttaði ég mig á því að ég hafði í rauninni dottið óvænt í lukkupottinn og þetta hafði ég verið að vinna með vinstri hendinni? Þetta er ekki mitt fag. En þá gekk ég í það að finna útgefanda en fannst ég ekki vera að standa mig gagnvart höfundinum. Þannig að ég bara gekk í það af öllu afli að reyna að finna handa henni erlendan umboðsmann. Ég held ég hafi talað við fimm sem ég þekkti, sem voru mikil mistök. Maður á að tala við einn í einu af því að þau vildu öll taka hana að sér. Hún fór strax til Copenhagen Literary Agency. Flestir okkar höfunda eru með erlenda umboðsmenn sem sjá um erlendu sölurnar og sem sagt samskipti við erlenda útgefendur.“

Og Sigga Hagalín er þá bara að verða stórstjarna á sviði bókmenntanna?

„Já, já, hún er að verða stórstjarna.“

Enskumælandi markaður er erfiður

En eitt er að komast inn á Evrópumarkað, svo er Ameríkumarkaður allt annað eða hvað?

„Enskumælandi markaðir eru yfirleitt mjög erfiðir og Ameríkumarkaður enn erfiðari en sá enski. Það er talað um að 2 eða 3 prósent bóka sem koma út á ensku séu þýddar á meðan það er hátt í helmingur í Þýskalandi. Við erum með náttúrulega sko höfunda eins og Auði Övu og Jón Kalman sem eru að koma út í 30 löndum. Það er alveg gífurlegt, þú veist, það er varla, það er varla hægt að koma út á fleiri tungumálum.“

Þú ert að tala þarna um bara einhverja okkar fremstu höfunda. Hvað, af hverju vilja þau vera hjá þér?

„Þú verður að spyrja þá.“

Þetta er rosalegur listi sem þú ert með?

„Takk fyrir það. En þetta er það sem bókaútgáfa gengur út á, að reyna að haga sér þannig að fólk vilji starfa með manni og gefa út góðar bækur. Þá held ég að ennþá meiri líkur séu á að fleiri góðir höfundar hafi áhuga á að bætast í hópinn. Og við, ekki bara ég heldur ég og mitt samstarfsfólk, Einar Kári og Helga, leggjum okkur öll fram við að sinna okkar höfundum vel. Í fyrsta lagi náttúrulega með ritstjórn og yfirlestri og svo í kynningarmálum og svo bara í almennum veisluhöldum. Við höldum bestu veislurnar.“

En ég hef hins vegar engan sérstakan móral yfir því að vera að draga þig til mín núna því ég veit að helsti álagstíminn er að baki.

„Útgáfulistinn liggur fyrir. Okkar draumur er að hann liggi hreinlega fyrir að vori. Núna í ár sendum við nokkrar bækur í prent fyrir sumarfrí. Við lokum í júlí. Þannig að, sem sagt, það getur kannski verið lestur utanhúss í gangi og eitthvað svona en skrifstofan er lokuð í júlí. En svo erum við enn þá að senda bækur í prent í ágúst og fram í september. Ég myndi segja að í ágúst og september sé mesta álagið. Sérstaklega í september, þá er mesti álagstíminn hjá okkur á skrifstofunni. Þá er það í rauninni framleiðslan á bókunum.

Jólabókaflóðið skiptir gríðarlega miklu máli

En svo kemur alltaf eitthvað upp á, seinkanir í prentsmiðju og annað slíkt.

„Jólavertíðin skiptir okkur svo rosalega miklu máli, ef það eru einhverjar seinkanir að hausti þá sefur maður ekki. En núna er allt farið frá okkur. Sumt er komið til baka, sumt er komið út og margir titlar eru að koma út. Við höfum aldrei verið fyrr á ferðinni en nú. Við prentum í útlöndum, við höfum verið að prenta til dæmis í Litáen og þaðan er afgreiðslufrestur venjulega sex vikur. 

Guðrún segist ekki hafa neina fordóma gagnvart krimmum, hún hefur einfaldlega ekki smekk fyrir þeim. Flestum.vísir/anton brink

En svo lentum við í því núna með tvo titla, skáldsöguna hans Jóns Kalmans og minningabók Ingu Bjarnadóttur, Einfætta ballerínan, sem er stórskemmtileg bók, að það urðu tafir. Við sendum þær snemma frá okkur og áttum von á þeim í byrjun október. Þá bara kemur yfirlýsing frá prentaranum, því miður: Afgreiðslan tefst um þrjár vikur. Og það er ekkert sem við getum gert í því. Þannig að við erum ekki að fá þær fyrr en í lok október. Þetta er svona. En það eru margir titlar að koma út hjá okkur núna í lok október og fyrstu vikuna í nóvember.“

Inga Bjarnason leikstjóri er spennandi karakter?

„Frábær týpa.“

Skrifar hún þessa bók sína sjálf eða?

„Hún skrifar hana sjálf en fær mjög góða ritstjórn.“

Ég hjó eftir því að Hlín Agnarsdóttir er að ræða við hana þarna í hlaðvarpinu ykkar?

„Já, ég mæli með þeim þætti, þær eru stórskemmtilegar.“

Hvað eru þetta margar bækur sem þú ert að gefa út núna fyrir þessi jól?

„Þetta eru sjö skáldsögur, fjórar ljóðabækur, tvær minningabækur, barnabók. Svo erum við með þýðingu. Við ætlum að vera með tvær bókmenntalegar þýðingar fyrir jólin. Svo er náttúrulega Orlando, framhald eftir Harry Whittaker.

Útgáfusaga bóka Lucindu Riley á Íslandi, og vitaskuld víðar, er algjör draumur í dós.vísir/anton brink

 Og framhald af seríu Lucindu Riley um systurnar sjö, sem eru einhverjar vinsælustu bækur sem við höfum gefið út. Lucinda Riley á sér alveg gífurlega stóran og mikinn aðdáendahóp hér. Og talandi um Dan Brown og Harry Potter þá var hún nú kannski svolítið mitt lukkutröll. Við köllum það veltuárin þegar serían um systurnar sjö sló svo rækilega í gegn hérna. Eftir að þeirri útgáfu lauk höfum við verið að gefa út stakar bækur eftir hana sem ganga líka mjög vel. Hún á heita aðdáendur. Þegar ný bók kemur út fara eldri bækurnar af stað aftur, sem er alltaf algjör draumur.“

Krimmarnir hafa verið að einoka metsölulistana hér heima en þú ert ekkert mikið í krimmunum?

Nei, ég hef ekki verið það. Ég hef verið með svona einn og einn ef mér finnst höfundurinn vera mjög sérstakur. Krimmar eru bara ekki mitt forté. Reyndar er Guillaume Musso, franski höfundurinn sem við vorum að byrja með og sem fékk einmitt frábæra dóma í Kiljunni um daginn, afar sérstakur krimmahöfundur. Hann er franskur og þar er annað umhverfi. Ég hef ekkert við krimma að athuga og er kannski að finna mig í Musso.“

Mjólkurkýr og lukkutröll

Guðrún segir þetta einfaldlega smekk sinn á bókmenntagreinum hann sé ekki bundinn við neina eina grein. En hversu mikilvægir eru útgáfurnar sem eru að selja eitthvað af viti?

„Hvað kallarðu eitthvað af viti?“

Tjahh, þetta sem þú kallar mjólkurkýr og lukkutröll? Sko, ég hef heyrt fólk í útgáfubransanum og menningarpáfa tala af lotningu um til dæmis Arnald Indriðason, að hann sé eins konar velgjörðarmaður allra hinna?

„Ég hef ekki reiknað þetta út hjá mínu fyrirtæki en hef heyrt einhvers staðar að almennt og yfirleitt séu það í rauninni 10 prósent af útgefnum titlum sem standi undir útgáfunni á öllum hinum. Það skiptir auðvitað mjög miklu máli að vera með mjög góða sölutitla. Það bara skiptir öllu máli fyrir reksturinn og gerir fólki kleift að gefa út annað minna sem ljóst er að verði ekki miklar mjólkurkýr.

Guðrún verður að treysta á smekk sinn og tilfinningu þegar hún velur úr handritum til útgáfu.vísir/anton brink

Það er náttúrulega til kapítal af fleira tagi en fjármagnskapítalið. Það skiptir líka máli, eins og þú ert að segja, að ég sé með fallegan lista. Það skiptir líka máli að gefa út áhugaverðar bækur þó að þær seljist ekki í bílförmum. Það skiptir máli að hafa tök á því að rækta upp nýja höfunda. Það er ekki oft sem það gerist, eins og með hana Margréti Bjarnadóttur, að það bara rjúki út fyrstu bækur höfundar.“

Guðrún segir slík ævintýri ómetanleg, að heyra að bókin snerti fólk djúpt. En hvernig veist hún þegar hún fær handrit á borð til þín að þar sé eitthvað sem vert er að gefa út?

„Þetta er tilfinning. Hvernig maður er við lesturinn, hvort textinn grípi athygli manns og áhuga og hvort maður njóti lestursins. Svo þarf að eiga misjafnlega mikið við handrit. Stundum segir maður að suma höfunda væri hægt að senda beint í prentsmiðju. Náttúrulega bara tekið þannig til orða. Það þarf alltaf að lesa yfir handrit. En það er kannski munur á hvað þarf að ritstýra miklu, hvað þarf að eiga mikið við söguþráð, persónur og annað slíkt. Ég bara vona að ég hafi eitthvað auga fyrir þessu. En ég hef líka alveg misst af hlutum, hef bara ekki kveikt á góðu handriti sem ég sé síðar eftir og skil þá ekkert í mér. Það hlýtur að hafa legið eitthvað illa á mér.“

Gott að semja við mömmu gömlu

Guðrún segir ótrúlegar tilviljanir eiga sér stað í þessu starfi.

„Ef við förum aftur í lukkudýrið mitt, hana Lucindu Riley, þá var ég í sjálfu sér ekki að leita að sölutitli. Ég hafði ekki gefið út þess lags bókmenntir áður. Kjarninn í okkar útgáfustarfi eru bókmenntaleg verk. Hvort sem það eru íslenskir höfundar eða þýddar bækur.“

Guðrún var þá stödd á bókamessunni í Frankfurt og á franska ganginum, sem svo er kallaður, hitti hún alls konar fólk sem hún þekkti.

„Ég er búin að nefna hjátrúna. Og þarna heyrði ég þrisvar sinnum talað um þessa Lucindu Riley. Ein kona sem ég þekki hafði verið að skipta um starf þannig að hún var farin að vinna hjá annarri útgáfu og nú var Lucinda Riley hennar helsti skjólstæðingur. Og svo voru einhverjar tvær aðrar sögur. 

Guðrún býr svo vel að eiga móður, Valgerði Bjarnadóttur, sem fæst við þýðingar. Og hún gat því leyft sér að fá hana til að þýða Lucindu Riley án þess að of mikið væri lagt undir.vísir/anton brink

Ég hafði ekki heyrt af þessum Lúsindum áður en fannst þetta mjög áhugavert. Svo kemst ég í netið um kvöldið, fletti henni upp og sé þá að þetta er stórvinsæll höfundur víða um heim. En bækurnar hennar eru mjög langar þannig að ljóst er að þær verða mjög dýrar í þýðingu. Þannig að það er svolítið svona risastórkostleg kona að byrja með slíka seríu. En þá er ég svo heppin að hún mamma, Valgerður Bjarnadóttir, hafði verið að prófa að þýða fyrir mig nokkrar bækur og gert það vel.“

Já, sú stórkostlega kona.

„Já, já. Og ég spyr hana hvort hún vilji ekki reyna sig við þetta. En bendi henni á að þetta sé mikið, hvort hún geti ekki tekið þetta að sér. En ég varaði hana við: „Ef þetta dæmi gengur ekki upp hjá okkur þá færðu nú ekkert fyrir þetta, mín.“

Gott að díla við mömmu.

„Ég vona bara að ég hafi ekki verið að brjóta nein lög. Ég held að maður megi semja svona við móður sína.“

Þýðingar krossgátur fyrir lengra komna

Valgerður tók verkið að sér og úr varð mikið útgáfuævintýri. Og Guðrún þurfti að bæta fleiri þýðendum í hópinn, svo umfangsmikið var höfundarverkið. Þetta er saga um tilviljanir og aðstæður, á réttum stað á réttum tíma, sem eiga sér stað í útgáfunni. En hvaða Frakklandstenging er þetta?

„Þetta var bara ást á frönsku og Frakklandi. Gamall draumur að læra þar og svo lærði ég seinna í Belgíu. Meðfjölskylda mín, sérstaklega mamma og Kristó (Kristófer Már Kristinsson heitinn), hennar maður, og Baldur bróðir minn, bjuggu þar. Mamma og Kristó voru í Evrópustarfi og ég hafði nú sannarlega sterka taug þangað.“

Guðrún segist vera farin að þýða aftur eftir nokkurt hlé. Þýðingar segir hún krossgátur fyrir lengra komna.vísir/anton brink

En ert þú að þýða sjálf?

„Já, ég er byrjuð á því aftur. Það var alltaf draumurinn þegar ég sem sagt stofnaði útgáfuna, þá sá ég fyrir mér að ég myndi þýða bækur áfram. Mér finnst mjög gaman að þýða og sá fyrir mér að ég myndi þýða meðfram útgáfustörfunum.“

Gallinn við Guðrúnu var löngum sá að hún átti til að skila þýðingum sínum seint og illa af sér.

„Ég byrjaði á einhverjum bókum en ég bara hafði ekki tíma og þurfti að láta þær annað. En núna er ég með tvo frábæra starfsmenn og er meira að segja búin að þýða tvær bækur sem koma út á ári.“

Guðrún þýðir áðurnefnda bók eftir Guillaume Musso sem er önnur sem kemur út hjá Benedikt. Kristín Jónsdóttir þýddi fyrstu bókina.

„Ég þýddi Dauðann og eyjuna hérna númer tvö, það var langt komið með hana og svo höfund sem heitir Virginie Grimaldi, bókin heitir Það sem eftir er. Þetta er létt og skemmtileg saga. En varðandi það að vera svona bestur í sínum flokki þá er ég nú ekki oft mikið fyrir svona léttmeti. Mér finnst það oft einhvern veginn fara yfir einhver strik, eitthvað verða of væmið fyrir mig eða slíkt. En hún Gríma Dís mín gerir það ekki. Og ég kann bara verulega vel við hana og hennar skrif og finnst gaman að þýða hana og hlakka til að halda því áfram.“

Þýðingar eru auðvitað með ýmsu móti og þar eru heilu skólarnir. (Þetta lærði ég í þýðingarfræði hjá honum Gauta Kristmanssyni.)

„Já, það er alls konar hluti að leysa. Það er kannski ekki verið að stytta og staðfæra eins og einu sinni var gert en – þetta er krossgáta fyrir lengra komna.“

Bókaútgáfa að verða algjör kvennabransi

Í viðtali við Halldór Guðmundsson, sem skrifar bókmenntasögu Íslands frá öndverðu, rukkaði ég hann um svör við því hvers vegna hann legði við hvert tækifæri lykkju á leið sína og drægi allar konur inn í söguna. 

Þá fór hann að segja mér að þetta væri ósögð saga og fullyrti það við mig, sem reyndar Jóhann Páll Valdimarsson hafði nú gert fyrir löngu, að konur væru bara hreinlega að taka þennan bransa yfir?

„Vá, ég vildi geta svarað þessu með svo afgerandi hætti. Við erum í það minnsta ekki að vinna eftir neinni pólitískri stefnu eða kvóta eða neinu slíku. En nú þegar ég lít hratt yfir útgáfulistann þá eru mun fleiri kvenhöfundar hjá okkur núna en karlhöfundar. Og ef ég lít líka hratt yfir þá eru mun fleiri konur sem stýra útgáfum núna heldur en karlar. Af hverju þetta er, get ég, ég bara veit það ekki?

Konur eru auðvitað þær sem helst lesa bækur og hvers vegna ættu þær þá ekki að stýra þessu líka?

„Ég vona að þetta sé ekki til marks um að launin séu orðin lægri. En, já, þetta er svona bæði á Íslandi og erlendis. Ég er nýkomin heim, ég var svo heppin að komast bæði á bókamessuna í Gautaborg, þangað sem ég hef aldrei komið áður, og í Frankfurt sem var núna á síðustu vikum. Og þegar ég hugsa til baka þá held ég að ég hafi bara hitt konur. Já, þetta er mjög bæði hér heima og erlendis. Þetta er mikill kvennabransi.“

Léttari bækur sem fólk vill á hljóðbók

Svo ég vitni aftur í Halldór þá hafa orðið miklar breytingar á þessum bókabransa, hrun hafi orðið í bóksölu og bækur meira að koma til neytenda í formi hljóðbóka en nokkru sinni fyrr?

„Já, það hefur orðið hrun í bóksölu, það er bara alveg rétt. Einhvern tímann gátu metsölubækur verið að seljast í 15 til 20 þúsund eintökum. Ég er hrædd um að það fari ekki mikið yfir tíu núna. Það varð ákveðin breyting en sem betur fer er sú þróun nú stoppuð.“

Guðrún Vilmundardóttir útgefandi er með skemmtilegri konum. Hún viðurkennir nú að hún hafi verið að spila með blaðamann þegar hún lýsti yfir í eyru hans því að hún hefði hug á að sækjast eftir formennsku í Fíbút.vísir/anton brink

Þetta er sem sagt ekki stanslaus stígandi lukka. Markaðurinn er að breytast.

„Eftir að hljóðbækurnar eru komnar í streymi hafa þær notið mikilla vinsælda en mér sýnist þetta vera öðruvísi bækur sem fólk er að hlusta á en það er að kaupa. Þar virðist vera ólíkt mynstur. Þar eru bækur af léttara tagi og ég er ekki með marga slíka titla. Ég sé bara svona listana hvað virðist vera að ganga. Þetta er nýr markaður, meira ódýrari kiljurnar sem voru á sínum tíma.“

Þetta er athyglisvert.

„Já. Ég er ekki viss um að það sé hljóðinu að kenna að bóksala hafi verið að dragast saman. Mér sýnist, og nú er ég ekki vísindamaður né hef rannsakað þetta þannig, en ég sé af mínum tölum að svona er þetta. Ég held að bókin hafi að vissu leyti miklu frekar verið að keppa við nú öll þessi podköst eða sjónvarpsseríurnar og annars konar afþreyingu. Sá sem er að horfa í sex daga á sjónvarpsseríu er ekki að lesa bók með.“

PDF-skúrkurinn hringlar í Brynju Hjálmsdóttur

Vendum okkar kvæði í kross. Ég las fyrir nokkru furðulega frétt af PDF-skúrknum.

„Sá leiðindafauti.“

Já, sá dólgur. Hvað er að frétta af honum? Þetta er einhvers konar hakkari eða smyglar hann sér inn í tölvupóstsamskipti og kemst þannig yfir handrit?

„Þetta er algjört leiðindamál. Ég rakst einmitt á gamlan tölvupóst um daginn og þar er þetta kallað „Fischer“. Þetta byrjaði í útlöndum. Í gömlum tölvupósti frá erlendum umboðsmanni má sjá rautt letur neðst í póstinum: Vinsamlegast athugið að það er einhver að líkja eftir tölvupóstinum okkar. Þetta hafði ég aldrei séð. En þetta er sem sagt einhver að villa sér inn í samskiptin og biðja um að fá send PDF af bókunum sem við erum stanslaust að senda okkur á milli.“

Þessi eða þessir skúrkar fara yfirleitt á stjá þegar mestur asinn er á forlögunum og smygla sér þá inn í samskiptin.

„Hann er kannski á því að hann var með eina bara stafsetningarvillu í nafninu eða eitthvað slíkt sem þú tekur ekki eftir. Ég hef til dæmis aldrei verið með gmail-netfang en allt í einu voru höfundar mínir farnir að fá tölvupóst frá gudrúnv@gamail.com. 

Guðrún vandar PDF skúrknum ekki kveðjurnar.vísir/anton brink

Þetta er óþægilegt og leiðinlegt en við höfum aldrei skilið í sjálfu sér hvað annað hann er að gera en að pirra okkur – vera með leiðindi. Af því að hann er ekkert að fjárkúga okkur. Hvað getur hann gert við þetta? Hvernig er þetta? Hverjum ætlar hann að senda PDF-bók sem er að koma út eftir?“

Þannig að það er ekkert, ekkert tjón af þessu?

„Nei, en þetta leggst svolítið á taugakerfið á manni. Þetta er hundleiðinlegt. Þú vitnar í PDF-skúrkinn en lengi vel var talað um bókaþjófinn og mér finnst það næstum því svona rómantískt orð. Mér finnst Bókaþjófur geta verið eitthvað svona af þessum miklu ástarbókmenntum að hann bara geti ekki annað en stungið einni í vasann í bókabúðinni. En þetta er skúrkur og ég kalla hann bara PDF-skúrkinn.“

Guðrún segir bókaútgefendur ekki hafa breytt sínu verklagi vegna skúrksins sem er enn á kreiki.

„Ég er búin að heyra af honum einu sinni, hann var með einhver leiðindi við hana, Brynju Hjálmsdóttur, um daginn. Hún er að koma með bók núna seinna í október sem heitir Undir fögru skinni.“

Hún er svo góður höfundur.

„Já, hún er frábær. Nú er hún að skrifa hrollvekju. En ég hef ekki heyrt að hann hafi angrað fleiri að þessu sinni.“

Gríðarlega öflugur útgáfulisti

Sko, við erum nú eiginlega þegar komin með þetta, þetta sem hún Bryndís Loftsdóttir kallar svarta hestinn í jólabókaflóðinu, sem væri þá hún Margrét Bjarnadóttir. En geturðu nefnt mér einhverja aðra titla sem er vert að hafa auga með núna í upphafi jólabókaflóðs?

Ja, það, ég myndi náttúrulega vilja nefna alla mína helstu titla.

„Já, ég bjóst ekki við neinu öðru frá þér.

„Jón Kalman og Auður Ava eru með nýjar skáldsögur sem margir bíða eftir. Ég hef fundið mikla stemningu fyrir nýrri og fyrstu skáldsögu Maríu Elísabetar Bragadóttur sem hefur áður sent frá sér smásögur sem hafa notið mikilla vinsælda. Núna kemur frá henni skáldsaga sem heitir Þúsund barna móðir. Hún kemur út í nóvember. Ég er búin að nefna minningabókina hennar Ingu Bjarnason. 

Guðrún er ánægð með útgáfulistann fyrir þetta jólabókaflóðið og hún má vera það.visir/anton brink

Við erum náttúrulega með rosa flottar ljóðabækur. Við erum með ljóðabók eftir Hannes Pétursson, aldna skáldið og erum mjög stolt af því að hann hafi leitað til okkar. Bragi Ólafsson er með tvær bækur hjá okkur, bæði ljóðasafn sem Kristín Svava Tómasdóttir skrifar eftirmála við og Innanríki 2. Innanríki 1, Alexíus, vakti mjög mikla lukku þegar það kom út fyrir tveimur árum frekar en í fyrra og nú heitir nýja Innanríkið, Innanríki 2, Aðfangadagar. Þetta eru minningar. Maður trúir varla öðru en að sumar þeirra séu skáldaðar en maður veit náttúrulega aldrei nákvæmlega með Braga. Ég er örugglega að gleyma einhverju eins og gengur en við erum með mjög flottan lista.“

Ég veit ekki hvernig aðrir ætla að keppa við þetta.

„Þeir um það, segir maður bara.“

Við getum ekki hætt að furða okkur á þessu jólabókaflóði sem mér skilst að sé einstakt fyrir Ísland.

„Kristján B. Jónasson sagði mér einhvern tímann að þetta hefði orðið til á haftatímabilinu. Þá var ekki mikið úrval á gjafavöru en við vorum heppin að það var mikil og blómleg bókaútgáfa í gangi. Þá verður það að þessum sið að gefa bækur í jólagjöf. Þetta skiptir útgefendur miklu máli og bók er frábær gjafavara.“

Guðrún vonar að þessi siður haldist sem lengst, enda bækur besta gjöfin.

„Ég gef bara bækur. Hún Vala, litla frænka, dæsti einhvern tímann yfir jólin þegar ég afhenti henni pakkana. Hún sagði: „Hún Gurra frænka, hún gefur manni alltaf bækur.“ En svo bætti hún við: „En hún gefur reyndar alltaf skemmtilegar bækur.“

Ég á tvö barnabörn og sé ekki fyrir mér annað en að þetta haldi, þau eru sólgin í að lesið sé fyrir þau.

„Geggjað. Ef krakkar komast upp á lag með þetta en þá verður náttúrlega að veita þeim aðgengi að bókum og þá góðum og skemmtilegum bókum.“

Hringlað í útgefendum

Eins og ég hef nefnt þá finnst mér bókabransinn ótrúlega áhugavert fyrirbæri og ýmislegt að gerast á þeim vettvangi. Og mig rámar í frétt sem ég skrifaði þess efnis að fyrir dyrum stæðu átök um formann í Félagi íslenskra bókaútgefenda; að þú værir kandídat.

„Já, þú áttar þig kannski ekki á því hversu mikill bandamaður þú varst minn í þessu máli.“

Hmmm, blaðamaður vill helst ekki láta nota sig. Nema, hvað gerðist?

„Þetta var fyrst eftir að ég stofnaði Benedikt bókaútgáfu. Þá voru einhverjir svolítið pirraðir að segja: Óþarft að fá nýjan keppinaut á markaðinn.

Höfðu þeir þá horn í síðu þinni?

„Ég myndi ekki segja horn í síðu, það er of sterkt til orða tekið. En mér fannst gaman að gefa það í skyn að ég væri að sækjast eftir formennsku í félaginu. Á háannatíma. Þú varst svolítið ginnkeyptur fyrir þessu ef ég man rétt, sem sagt að lýsa því yfir að ég hefði mikinn áhuga. Ég hef verið í stjórn Félags bókaútgefenda síðan ég hóf störf í bókaútgáfu. Ég tók sæti Snæa. En þetta fór í taugarnar á þeim. Ég sat bara, horfði á klukkuna og hugsaði með mér: Nú er ég örugglega búin að eyðileggja fyrir þeim klukkutíma eða svo, dýrmætar vinnustundir því nú eru þeir að hringja hver í annan og óskapast yfir þessu. Maður verður að hafa eitthvað sér til skemmtunar.“

#held #maður #megi #semja #svona


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262949534d/-eg-held-ad-madur-megi-semja-svona-vid-modur-sina-

📰 Aðrar fréttir

Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
📅 18.10.2026 👁️ 1
Nokkrir látnir og særðir í bruna í kanadískri herstöð
Yfirvöld í Kanada lýsa alvarlegu atviki sem leiddi til stórbruna í herstöð í Alberta sem stórslysi. Stjórnvöld hafa staðfest að nokkrir séu látnir og ...
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Eignar Ingu Sæ­land plötutitilinn - Vísir
Þetta segir hinn þrítugi tónlistarmaður Elvar Smári Júlíusson um nýju plötuna sína Hver og einn verður að ráða sínumnæturstað sem kom út 9. október en...
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Flúði tára­gas lög­reglu í Nice - Vísir
Greint hefur verið frá því að um 1.800 manns hafi verið handtekin á mótmælunum víða um Frakkland og um 500 lögreglumenn og slökkviliðsmenn séu slasaði...
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Katrín Oddsdóttir: Seyðfirðingar eru sér á parti – hafa ekki lagst kylliflatir
Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gr...
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
📅 18.10.2026 👁️ 1
Einar með viðvörun: „HÉR ÆTTI ENGINN AÐ VERA Á FERÐINNI Í KVÖLD!“
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur varar í Facebook-færslu eindregið við því að fólk verði á ferðinni á milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs í kvöl...
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vara við uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis og skóla við hlið Reykjavíkurflugvallar
Bæði Isavia innanlandsflugvellir ehf. og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vara við áformum sem felast í tillögu um nýtt deiliskipulag fyrir hinn svokal...
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
📅 18.10.2026 👁️ 1
Maðurinn sem lést á Gæsavatnaleið var íslenskur
Maðurinn sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi. Hann var á ferð með hó...
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í Frakk­landi og ekki bjóða góðan dag - Vísir
Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.  Framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna segir lyfjafyrirtæki auglýsa sjúkdóma til að komast...
„Ég elska Obbu“ - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
„Ég elska Obbu“ - Vísir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var í ítarlegu viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi...
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
📅 18.10.2026 👁️ 1
Vill fækka borgarfulltrúum um þriðjung
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill að borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15. Þetta segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Þar segir hún að m...
Upplausn andsetinna stjórnvalda
📅 18.10.2026 👁️ 2
Upplausn andsetinna stjórnvalda
Upplausn andsetinna stjórnvalda Throstur18. október 2026InnlendarLeave a Comment Andsetið Alþingi Þröstur Jónsson ritar að austan. Upplausn og villigö...
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
📅 18.10.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?
Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin slóu í gegn á sínum tíma með ódauðlega persónu Georgs Bjarnfreðarsonar í forgrunni sem Jón Gnarr gæddi ævarandi ...
Parisians wake up to protest damage and looted shops
📅 18.10.2026 👁️ 2
Parisians wake up to protest damage and looted shops
Violence broke out across France on Saturday during the latest day of demonstrations against conditions in schools and the cost of living.
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni - Vísir
Í Facebook-færslu segir slökkviliðið að 89 útköll á sjúkrabíla hafi verið skráð. Útköll á dælubíla voru þá sjö talsins og þar af þrjú vegna roktjóns. ...
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
📅 18.10.2026 👁️ 0
Buggy safari operators face police checks over permits in Lanzarote
Buggy safari operators in Lanzarote face police checks after Teguise’s mayor admitted the council could not confirm whether companies using local rura...
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Þor­gerður Katrín í ítar­legu við­tali - Vísir
En fyrst verður fjallað um vantraust og stífni í samskiptum ríkis og sveitarfélaga með Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra í Garðabæ og nýkjörnum formann...
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
📅 18.10.2026 👁️ 2
Oddhvöss aldin í fyrsta sinn á Íslandi
Í útjaðri Þingholtanna í Reykjavík gætir fréttnæmrar frjósemi. Í garði leikskólans Laufásborgar, hefur stærðarinnar tré, hrossakastanía, myndað aldin ...
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
📅 18.10.2026 👁️ 1
Green Party leader Zack Polanski says he will not overturn Zionism motion
The Green Party leader said, while he wanted to amend it, the motion would stand until 2028.
Auðmýkt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Auðmýkt
Auðmýkt Eitt helsta ein­kenni nútíma­mann­eskj­unnar er að vita allt best. Eitt helsta ein­kenni nútím­ans er upp­lýs­inga­óreiða, og eitt helsta ein­...
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
📅 18.10.2026 👁️ 2
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“
Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur beint því til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sjá til þess framvegis að sakborningar fái úthlutað þeim verje...
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 2
Brian May receives surprise award as music stars light up Starmus opening in Tenerife
Brian May received a surprise honour for his environmental and conservation work as Starmus opened in Santa Cruz de Tenerife last night, Saturday 17th...
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
📅 18.10.2026 👁️ 2
France protests: Burnt out cars and shattered glass on Paris streets after protests turn to riots and looting
Around 1,800 people were arrested after nationwide protests saw outbreaks of violence and vandalism.
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
📅 18.10.2026 👁️ 1
Man, 80, who died in light aircraft crash near Loch Lomond named
The flying instructor has been described as "a gentleman and an experienced aviator" by former students.
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
📅 18.10.2026 👁️ 2
Útköll vegna hvassviðris og vatnsleka í gær
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór í sjö útköll í gær og í nótt, þar af að minnsta kosti þrjú vegna roktjóns. Þá var slökkvilið kallað út vegna vatns...
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ég upp­lifði mjög sterkt að ég væri að bregð­ast - Vísir
„Ég fer í reglubundna skimun í nóvember á síðasta ári,“ segir Sólveig Jónsdóttir, sem greindist með brjóstakrabbamein í maí. „Það sést ekki neitt og a...
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland á tímamótum hvað varðar mansal
Lögregla rannsakaði þrettán mansalsmál í fyrra en fékk ábendingar um og kannaði 76 til viðbótar. 44 mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar. Breskur sérf...
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
📅 18.10.2026 👁️ 3
Three motorcyclists taken to hospital after collision with car in south Tenerife
Three motorcyclists were taken to hospital after a collision involving their bikes and a car in south Tenerife yesterday (Saturday), at 12.45pm on the...
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Stella í or­lofi á stóra sviðið - Vísir
Gamanmyndin Stella í orlofi var frumsýnd í íslenskum bíóhúsum 18. október 1986 og fagnar því fertugsafmæli í dag en í tilefni dagsins greinir Borgarle...
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
📅 18.10.2026 👁️ 2
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum
Reyndu allar mögulegar meðferðir til að bjarga fjögurra ára syni sínum Fjölskyldan á góðri stunduBaxter lést aðeins fjögurra ára gamall Mynd: Instagra...
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Frændinn sem braut á henni gengur enn laus - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn - Vísir
Árið 2022 hlaut móðurbróðir Sigríðar fimm ára fangelsisdóm í Landsrétti fyrir að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi, en brotin stóðu yfir í ellefu ...
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Móðir ó­sátt við að bara apríl­börn fái ekki RS-bólu­efni - Vísir
Síðastliðinn vetur stóð foreldrum í fyrsta sinn til boða að þiggja bólusetningu gegn RS-veirunni fyrir börn yngri en sex mánaða. Nærri 90 prósent fore...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 3
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu
Falleg fjölskylduperla í hjarta Hafnarfjarðar komin á sölu Hamarsbraut 4 Bjart og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í hjarta Hafnarfjarðar er ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 3
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 3
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 3
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 3
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
📅 18.10.2026 👁️ 3
Urgent plan needed to end 'corridor care' for children, health secretary says
Yvette Cooper also announces £140m investment in England's urgent care system, ahead of winter.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 3
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 3
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
Í Tirana, höfuðborg Albaníu, sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í gær, fimmta daginn í röð.Mótmælendurnir, sem flestir eru mennta- og háskólan...