Nefnd um eftirlit með lögreglu hefur beint því til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að sjá til þess framvegis að sakborningar fái úthlutað þeim verjendum sem þeir óski eftir. Hafði lögmaður lagt fram kvörtun yfir því að lögreglan hefði farið fram á, eftir að maður sem hafði verið handtekinn og fluttur til skýrslutöku óskaði eftir því að þessi sami lögmaður yrði viðstaddur sem verjandi hans, að annar lögmaður yrði kallaður til. Túlkur sem átti að túlka það sem fram fór neitaði hins vegar, vegna fyrri samskipta þeirra, að mæta yrði þessi lögmaður viðstaddur.
Illindi milli túlks og lögmanns drógu dilk á eftir sér fyrir rannsóknarlögreglukonu - „Ég fékk þvert nei“