Lögregla rannsakaði þrettán mansalsmál í fyrra en fékk ábendingar um og kannaði 76 til viðbótar. 44 mansalsmál komu á borð Bjarkarhlíðar. Breskur sérfræðingur í málaflokknum segir aldrei hafa verið mikilvægara að ná til þolenda, til að koma í veg fyrir að Ísland verði eftirsóknarvert fyrir hópa sem stunda mansal.
„Við verðum að bera kennsl á fólkið meðal okkar í þjóðfélaginu sem hefur orðið fyrir þessum viðurstyggilega glæp, mansali. Til að gera það þurfum við vinnuafl sem heild og almenning sem skilur að fólk með áföll vegna mansals þarf mjög mild og vel ígrunduð viðbrögð,“ segir Rachel Witkin, sem hefur starfað með þolendum mansals í um aldarfjórðung.
Hún segir að fagfólk sem starfi með þolendum þurfi að fylgja einföldum viðmiðum. Áfallamiðuð nálgun skipti öllu máli, að þolendur fái tíma til að melta upplýsingar og upplifi að hlustað sé á þau, svo þau upplifi sig velkomin og að þeim sé ekki ógnað.
„Þau hafa upplifað ógn þar sem brotið er á þeim, nauðganir, líkamsárásir, ofbeldi og niðurlægingar í því sem þau gera, þeim er hótað, hlegið að þeim og mikil niðurlæging og ótti fylgja því,“ segir Witkin.
„En eitt sem gleymist stundum er að þolendur mansals hafa misst svo mikið.“
Hún segir því mjög mikilvægt að finna þolendurna og veita þeim réttan stuðning.
„Á endanum er það þetta sem stuðlar að réttlæti í dómskerfinu þar sem við getum tryggt að gerendur í mansalsmálum geti ekki notið lands eins og Íslands og talið sig komast upp með mansalið heldur verði þeir sakfelldir og fangelsaðir eins og vera ber.“
Tilkynningum um grun um mansal og lögreglurannsóknum vegna slíkra mála hefur fjölgað hér á landi síðustu ár. Witkin segir margt hafa breyst á þeim 25 árum sem hún hefur starfað á þessu sviði. Tilkynningum fjölgi því þekkingin sé meiri og viðbrögðin markvissari. Á sama tíma hafi tæknin auðveldað glæpahópum að koma auga á fórnarlömb, sem eru oft í viðkvæmri stöðu.
Þolendur endi oft í fangelsi
Mansal og aðrar tegundir brotastarfsemi haldist oft í hendur, og þolendur mansals séu jafnvel neyddir til að fremja glæpi.
„Þeir enda oft í fangelsi. Það eru mun fleiri þolendur mansals í fangelsi en gerendur og því þurfum við að breyta,“ segir Witkin.
Réttarkerfið þurfi að taka mið af því.
„Það ættu að gilda reglur um refsileysi til að koma í veg fyrir að fólk sé ákært fyrir glæpi sem það var neytt til að fremja.“
Ísland sé á mikilvægum tímamótum núna, þar sem unnið er að fyrstu landsáætluninni gegn mansali. Þá sé baráttan gegn mansali eitt af áherslumálum Eystrasaltsráðsins, sem Ísland fer með formennsku í.
„Þetta er góður tími til að einblína á að tryggja að Ísland verði ekki staður þar sem gerendur í mansalsmálum telji auðvelt að vera með starfsemi.“