Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, var í ítarlegu viðtali á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun þar sem hún ræddi meðal annars brotthvarf Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Jón sagði sig úr þingflokknum á fimmtudag og verður óflokksbundinn þingmaður. Í viðtölum hefur Jón sagt ástæðurnar margar, meðal annars skort á forystu innan þingflokksins, þungt andrúmsloft þar og að hann hafi ekki fengið að koma sínum málum á dagskrá.
„Ég veit að hann talaði um forystuleysi, ég ætla bara að hugsa það, en ef það er samt eitthvað sem ég hef ekki áður verið álösuð fyrir í mínu pólitíska lífi er það að vera ákvarðanafælin. Ég hef tekið þær ákvarðanir sem eru ekkert endilega alltaf vinsælastar í heimi en þetta er eitthvað sem ég ætla að skoða og tala við mitt fólk um,“ segir Þorgerður.
Jón formaður hóps sem skoðaði innra starfið
Ljóst sé að þjappa þurfi hópnum saman innan Viðreisnar og segir Þorgerður að það verkefni hafi verið í vinnslu áður en Jón kvaddi þingflokkinn. Jón hafi meðal annars verið valinn í að leiða hóp sem átti að fá algjört frelsi til að fara yfir innra starf Viðreisnar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna í ágúst.
„Það er auðvitað högg fyrir okkur að missa mann eins og Jón en hann ætlar að styðja ríkisstjórnina áfram. Hann sér stóru myndina, hvað það skiptir máli að halda áfram þessum verkum sem við skuldbindum okkur til þess að gera og við erum rétt að byrja og erum bara hressari sem aldrei fyrr,“ segir Þorgerður.
Í þætti Spursmála í fyrradag sagði Jón að það andaði köldu milli Þorgerðar og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Það hafi verið hluti af ástæðum þess að hann vildi koma sér úr þingflokknum.
Þorbjörg Sigríður neitaði því í viðtali við Vísi í gær og sagði Jón svo síðar að hann væri ekki að segja ósatt. „Hvað þetta er veit ég ekkert, en ég játa að ég hef orðið var við þetta,“ sagði Jón við Rúv í gær.
„Ég elska Obbu. Erum við alltaf sammála um allar áherslur? Ekkert endilega en ég styð hana eindregið. Ég held þetta sé besti dómsmálaráðherra sem við höfum haft, ekki bara í áraraðir heldur áratugi,“ segir Þorgerður.