Upplausn andsetinna stjórnvalda

Þröstur Jónsson ritar að austan.
Upplausn og villigötur guðleysis
Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með íslenskum stjórnmálm síðustu misserin, hvort sem litið er til núverandi ríkisstjórnar eða fyrri. Andavald hræðslu/ákvarðanatöku-ótta, lygi, eyðileggingar og jafnvel „slátrunar“ hefur vaðið uppi og styrkist með hverju árinu. Allt klár merki guðleysis og þar af leiðandi vegleysu.
„Þjófurinn kemur ekki nema til að stela, slátra og eyðileggja.“ [Jóh. 10:10]
„Drottinn vakir yfir vegi réttlátra en vegur óguðlegra endar í vegleysu.“ [Sálm. 1.6]
Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarið virðast menn ekki eiga sér lengur Viðreisnar von. Innan úr þeim flokki berast nú upplausnar-vein. Hef á tilfinningunni að enn frekari dapurlegr fréttir muni berast innan tíðar af mannlegum harmleik guðlausra og hjálparvana, það sem komið er sé bara toppurinn á ísjakanum.
Valdhafarnir láta kenna á því
Ástandið er hins vegar ekki bundið við Viðreisn eina, því vont virðist ástandið alstaðar. Greinarhöfundur varð þeirrar „ógæfu“ aðnjótandi að fá að heimsækja Alþingi Íslendinga síðastliðinn vetur þegar sveitarstjórn Múlaþings mætti í Alþingi ósátt við samgönguáætlun sem þá var í farvatninu. Sem kristinn maður varð ég fljótt áskynja um andavaldið sem hvílir yfir stofnunni og hef áður haft orð á því í ræðu minni margsinnis síðan. Hef mikið velt fyrir mér síðan í hvaða gervi raunveruleika valdhafar lifi? Það eru klárlega fleiri að velta því fyrir sér hér…, hér… og víðar.
Það segir á ágætum stað um þá sem vilja fara fyrir svo sem valdhafa þjóðar:
„Þið vitið að þeir sem ráða fyrir þjóðum drottna yfir þeim og höfðingjar láta menn kenna á valdi sínu. En eigi sé svo meðal ykkar heldur sé sá sem mikill vill verða meðal ykkar þjónn ykkar. Og sá sem vill fremstur vera meðal ykkar sé þræll ykkar“ [Matt. 20:25-27]
Svo mikilvæg eru þessi skilaboð Krists að þau eru endurtekin í Mark. 10.42-44 og Lúk. 22.25-27.
Því miður er það svo að valdhafar þessa lands virðast flestir kæra sig kollótta um þessi varnaðarorð Krists og því fer sem fer „illur andi Georgs Bjarnfreðarsonar“ á auðvelda leið að hjörtum manna og afleiðingar og örlög sem valdhafinn þarf að þola verða hin sömu og Georgs.
Gæti verið að stórleikarar jafnt sem dætur stórleikara ættu að finna sér annan starfsvettvang?
Mundi það verða þeim sjálfum sem þjóðinni til meiri heilla og nálgunar Guðs?
Stórhættulegur andi lyginnar
Grátbroslegast er þó að fylgjast með anda lyginnar sem virðist hafa náð að hremma valdhafa hérlendis sem almennt á vesturlöndum þar sem búnar eru til alskyns grýlur og furðu-kirkjur til að fela sig á bakvið. Má þar nefna loftslags-kirkjuna, voke-kirkjuna, rússagrýluna og fleira.
Oft spretta af þessu skondin ummæli eins og þau sem dóttir stórleikarans hafði uppi fyrir skemmstu um atburði í mannkynssögunni sem var endurspilað eftir handriti Evrópusambandsins. Hér má heyra Kaju Kallas tala upp úr sama hlægilega handriti. Fleiri tóku eftir þessari sögufölsun.
Verra er þegar búin er til gaslýsingar-grýla sem snýr að börnum og fyrrverandi utanríkisráðherra fer fyrir af miklum eldmóð þjökuð rússafóbískum anda. Veruleikinn virðist alt annar, hrollvekjandi rökstuddur grunur um barnanýð.
„Þér eigið djöfulinn að föður og viljið gera það sem faðir yðar girnist. … Þegar hann lýgur talar hann af sínu eigin því að hann er lygari og faðir lyginnar.“ [Jóh 8.44]
Lokaorð
Enginn undanskilinn hvar sem í flokki er, villan og glundroði andsetningar og guðleysis veður uppi alstaðar.
Já því miður virðist hinn illi hafa opnar dyr í öllum flokkum hvort sem það birtist í illum anda Georgs Bjarnfreðarsonar eða öðru. Jafnvel sjálfur Sjálfstæðisflokkinn er fallinn, flokkur sem áður stóð fyrir klisjuna „kristin gildi“ sem nú má ekki heyrast þar á bæ.
Góðar stundir í Guðs frið
Höfundur er áhugamaður um kristna umbót í stjórnmálum og fjölmiðlun