Meira en þúsund hestamenn komu saman í gær þegar réttað var í Laufskálarétt. Venju samkvæmt gerðu margir sér glaðan dag.
„Það eru líklega fleiri hundruð útlendinga hér sem koma gagngert til að upplifa þessa stemningu,“ sagði Rósa María Vésteinsdóttir frá Narfastöðum í Skagafirði.
Laufskálarétt er ein vinsælasta stóðrétt landsins og ár hvert safnast þar saman mikill fjöldi hestamanna. Hrossin voru rekin yfir ásinn til réttar þar sem bændur flokkuðu þau og komu í dilka. Að loknum réttum var haldið heim á leið með stóðið.
„Ég er nú fædd og uppalin hérna. Ætli ég sé ekki búin að fara yfir fimmtíu sinnum,“ segir Rósa.