Deilur hafa staðið um stækkun lóðar AtNorth til vesturs, við rætur Hlíðarfjalls á Akureyri. Margar athugasemdir bárust um deiliskipulagsbreytinguna og er unnið að því að svara þeim.
„Við erum bara að vanda okkur og það standa enn þá út af nokkur mál sem við viljum klára. Við erum mjög jákvæð fyrir þessari uppbyggingu en við eigum eftir að klára samkomulag við bílaklúbbinn, Létti og við eigum eftir að fá almennileg viðbrögð frá Norðurorku, Rarik og Landsneti um lagnaleiðir og fleira. Við erum að vinna þétt að þessu og vonandi fer þetta bara í gegn,“ segir Sunna Hlín Jóhannesdóttir, formaður skipulagsráðs á Akureyri, aðspurð hvers vegna málinu hefði verið frestað á síðasta fundi. AtNorth stefnir að uppbyggingu á Akureyri fyrir 30 milljarða króna.
Greiða fyrir tjaldsvæði Bílaklúbbs Akureyrar
Bílaklúbbur Akureyrar er næsti nágranni AtNorth. Með stækkun lóðarinnar missir hann hluta af tjaldsvæði sínu, sem hefur þjónað veigamiklu hlutverki í starfsemi hans að sögn formanns klúbbsins, Einars Gunnlaugssonar.
„Þetta er þannig. Við erum að skerðast um ákveðna möguleika. Við sjáum svo sem alveg lausnir í því sem er verið að semja um útfærsluna á. Ég held að það sé í sjónmáli samkomulag við Atnorth um að leysa þá framkvæmd á þann kostnað,“ segir Einar og vísar þar til þeirrar hugmyndar að AtNorth standi straum af kostnaði við að byggja upp nýtt tjaldsvæði fyrir bílaklúbbinn fyrir það að fá að stækka lóð sína.
„AtNorth hefur alveg það breytt bak í þessu að þeir geta gert okkur ánægða,“ segir Einar.
AtNorth staðfesti í skriflegu svari til RÚV að fyrirtækið hefði lýst yfir vilja til að taka þátt í uppbyggingu nýs tjaldsvæðis á Akureyri.
„AtNorth á í góðu og uppbyggilegu samtali við Akureyrarbæ og Bílaklúbb Akureyrar. Í gögnum sem lögð hafa verið fyrir skipulagsráð Akureyrarbæjar kemur fram að fyrirhuguð breyting hafi áhrif á núverandi tjaldsvæði Bílaklúbbsins og að atNorth hafi lýst yfir vilja til að taka þátt í uppbyggingu nýs tjaldsvæðis. Þar kemur jafnframt fram að markmiðið sé að tryggja áframhaldandi þróun og starfsemi Bílaklúbbsins samhliða fyrirhugaðri uppbyggingu á svæðinu. Þessar viðræður ganga vel og allir sem að málinu koma leggja sig fram um að finna farsæla lausn. Sameiginlegt markmið er að vel verði staðið að uppbyggingu svæðisins.“
AtNorth þarf ekki í umhverfismat
Þá vakti einnig athygli að Akureyrarbær telur að framkvæmdir AtNorth þurfi ekki að undirgangast umhverfismat. Málið var tekið fyrir á fundi skipulagsráðs í vikunni. Það var fyrst á dagskrá 26. ágúst þar sem því var frestað meðan beðið var eftir gögnum. Í bókun ráðsins segir: „Það er mat skipulagsráðs að í ljósi uppfærðra gagna varðandi hljóðvist þá telur skipulagsráð ekki ástæðu til að framkvæmdin fari í umhverfismat.“
Sunna Hlín Jóhannesdóttir staðfesti þetta við fréttastofu.
„Við fengum bara góðar skýrslur frá verkfræðistofu sem vann varðandi hljóðvistina. Við erum orðin sátt við það sem við það sem kemur þar, þannig við sjáum ekki tilgang í að biðja um umhverfismat,“ segir Sunna.