Einn var fluttur á sjúkrahús með áverka á höfði eftir að hópur unglinga veittist að 15 ára ungmenni og karlmanni á sextugsaldri í Mjóddinni í gær. Frá þessu greina RÚV og Vísir en miðlunum ber ekki saman um hvor árásarþoli hafi hlotið áverkann.
Hópur unglinga réðst á karlmann á sextugsaldri í Mjóddinni