Í kjöfarið var stórt svæði kringum bílana, í um fjögur hundruð metra radius frá bílunum þremur, rýmt. Þá voru 85 heimili í þorpinu Whelford rýmd.
Sjá einnig: Heimili rýmd nærri herflugstöð
Myndefni frá Whelford hefur í morgun sýnt sprengjusérfræðinga nota róbóta til að skoða sendiferðabílana en lögreglan hefur ekki staðfest að sprengjur hafi fundist í þeim.
A bomb disposal robot has been used at the scene of the incident in the village of Whelford.
— Sky News (@SkyNews) September 27, 2026
The vehicle appeared to be inspecting large white vans.
Sky's @KamaliMelbourne reports on what is known so far.https://t.co/pbFbjT2Ano
Sky 501, Virgin 602, Freeview 233 pic.twitter.com/hwH9iQgxgH
Aðrar myndir sem hafa verið í dreifingu í morgun hafa sýnt stærðarinnar traktora sem búið var að leggja fyrir innganga í herstöðina.
Umrædd herstöð er í eigu breska flughersins er einnig mikið notuð af Bandaríkjamönnum og meðal annars til árása í Íran. Þaðan hefur bandarískum sprengjuflugvélum verið flogið til árása í Íran og eru bandarískar sprengjuflugvélar þar núna.
Mennirnir fimm voru fyrst sakaðir um brot á lögum um sprengiefni en seinna meir var opinberað að þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverks. Það og hvernig traktorarnir var lagt fyrir innganga herstöðvarinnar, þykir benda til þess að mögulega hafi verið komið í veg fyrir árás á herstöðina. Lögrelgan hefur þó ekkert staðfest í þeim efnum.
Í yfirlýsingu frá lögrelgunni skömmu fyrir klukkan eitt kom fram að rannsókn væri enn yfirstandandi og að and-hryðjuverkasveitir kæmu að þeirri rannsókn.
UK counter-terrorism police seems to have intercepted a terrorist cell planning to strike RAF Fairford with (multiple) SVBIEDs. Army heavy tractors blocking base access points as bomb robots examine seized vans pic.twitter.com/VCvWp4gmjR
— Hugo Kaaman (@HKaaman) September 27, 2026