Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglu hefðu borist vísbendingar um að fjöldi fólks undir aldri væri á þessum tiltekna stað.
„Þegar lögregla kemur inn og fer að hafa afskipti af ungmennunum yfirgefa þau flest staðinn mjög fljótt,“ segir hann.
Sex ungmennum var komið í samband við foreldra sína sem komu að sækja þau.
Um allt að sextán ára unglinga hafi verið að ræða.