Slökkviliðið í Borgarbyggð var kallað að grunnskólanum í Borgarnesi laust fyrir klukkan eitt vegna gruns um eld. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var ljóst að um engan eld var að ræða heldur heitavatnsuppgufun úr niðurfalli í skúr skammt frá skólanum. Þegar slökkviliðið hafði leitað af sér allan grun um eld og fundið skýringuna á útkallinu héldu þeir á brott.
Slökkviliðið kallað að grunnskólanum í Borgarnesi