Óraníureglan á Norður-Írlandi gat ekki haldið umdeilda skrúðgöngu sína í dag vegna mótmæla kaþólikka. Árleg gangan hefur ekki verið haldin í 30 ár vegna sárra minninga um ofbeldi, morð og hryðjuverk.
Áður en birta tók í morgun höfðu mótmælendur safnast saman á Garvaghy-götu í bænum Portadown á Norður-Írlandi, til þess að tryggja að skrúðganga Óraníureglunnar, sem hefjast átti klukkan 8, yrði ekki gengin.
Fjöldi kaþólskra íbúa við götuna læstu örmum saman á henni miðri og hindruðu för reglumeðlima, þvert á skipanir lögreglu. Reglubræður í Óraníureglunni biðu átekta í fullum skrúða nærri hinni fornfrægu Drumcree-kirkju, en vildu ekki halda af stað fyrr en lögregla teldi það öruggt. Lögregla á brynvörðum bílum fylgist grannt með þróun mála, reiðubúin að stilla til friðar ef þörf krefur.
Fyrir marga hljóma þessar fregnir ekki kunnulega, en fyrir þá sem muna vel óöldina á Norður-Írlandi seint á síðustu öld virðist eins og hér sé verið að segja 30 ára gamlar fréttir.
Gangan, sem farin var árlega til þess að minnast sigurs mótmælandans Vilhjálms af Óraníu gegn kaþólska Englandskonugnum Jakobi öðrum árið 1689, er kaþólskum aðskilnaðarsinnuðum Norður-Írlands mikill þyrnir í augum. Í ofbeldisöldunni sem gekk yfir landið seint á síðustu öld, kristallaðist trúarhitinn vel með átökum, ofbeldi og jafnvel morðum í tengslum við göngu Óraníureglunnar í Portadown. Gangan í dag ýfir því upp gömul, en afar djúp sár.
„Þessi ganga má ekki fara fram hér í þessu samfélagi. Þannig tryggjum við friðinn,“ sagði Michelle O'Neill, fyrsti ráðherra Norður-Írlands við blaðamenn nærri Drumcree-kirkju í morgun. Hún er úr röðum Sinn Féin, flokki þjóðernisinna.
Síðan 1998 hefur Óraníureglunni verið bannað að marsera niður Garvaghy-götu. En eftir baráttu fyrir dómstólum fram á nýliðna nótt, fékkst leyfi til þess að halda gönguna. Óraníureglan hafði þó ekki erindi sem erfiði, að minnsta kosti ekki enn.