Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
Dr. Younis Al-Khatib er forseti Rauða hálfmánans í Palestínu. Hann lýsir aðstæðum á vettvangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóðasamfélagið stígi inn. Mannúðarsamtök geti ekki leyst pólitísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjáist. „Alþjóðasamfélagið þarf að skilja að nú er mælirinn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið pólitísk.“
Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans (PRCS), segir að alþjóðalög um aðgengi óbreyttra borgara að hreinu vatni og húsnæði hafi verið brotin auk þess sem aðstæður allar séu hörmulegar.
Dr. Younis Al-Khatib telur að fólkið á Gasa gleymist. Aðeins pólitískur vilji ráðamanna geti lagað ástandið sem hefur vægast sagt verið hörmulegt.
Byrjaði sem sjálfboðaliði
Dr. Younis Al-Khatib er menntaður í viðskipta-, lýðheilsu- og stjórnunarfræðum og hefur verið forseti palestínska Rauða hálfmánans frá árinu 2000, en hefur starfað í þágu félagsins frá árinu 1982 þegar hann gerðist sjálfboðaliði. Hann hefur gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum innan félagsins og verið í alþjóðastarfi hreyfingarinnar í áratugi.
Hann var staddur hér á landi í stuttri heimsókn í boði Rauða krossins á Íslandi. Hann hélt fyrirlestur í Þjóðminjasafninu þar sem hann fjallaði um stöðu mannúðarmála í Palestínu og þær áskoranir sem þar eru.
Palestínski Rauði hálfmáninn sinnir víðtæku lífsnauðsynlegu mannúðarstarfi, rekur meðal annars neyðarlínu, sjúkrabíla, …