Undanfarið hefur peptíðlyfið Reta eða Retatrutide verið sérstaklega áberandi í umræðunni. Það er mjög auðvelt að finna söluaðila, verðlista og umsagnir, þrátt fyrir að um sé að ræða ólöglegt lyf sem hefur ekki verið samþykkt af lyfjayfirvöldum, hvorki hérlendis né erlendis. Yfirvöld og heilbrigðisstarfsfólk hafa varað við notkun ólöglegra peptíða og kom upp nýlega tilfelli í Ástralíu þar sem vélinda manns rifnaði eftir notkun lyfs sem hann hélt að væri Reta.
Hættulega auðvelt að nálgast ólöglegt þyngdartapslyf á Íslandi – „Ég skal adda þér inn í grúbbu“