Tilkynnt var um alvarlega líkamsárás í Mjóddinni í Breiðholti í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöld.
Hópur ungmenna, flest á aldrinum 15–20 ára, veittist að tveimur, öðrum 15 ára og hinum á sextugsaldri. Átök þeirra á milli leiddu til þess að sá 15 ára fékk glerflösku í höfuðið og var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir ungmenni virðast hafa þekkt fólkið sem þau réðust á. Flestir gerendurnir voru undir lögaldri og lögregla hafi haft afskipti af mörgum þeirra áður.
„Þetta verður unnið með barnaverndaryfirvöldum og foreldrum í langflestum tilvikum,“ segir hann.