Fyrr í morgun var greint frá tveimur líkamsárásum í gærkvöldi eða nótt, einni í miðborg Reykjavíkur og annarri í hverfi 221 í Hafnarfirði.
„Í miðborginni beitti aðili úðavopni gegn vegfarendum sem verður til þess að einhver átök verða á milli fólks þar út af því,“ segir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Hann í kjölfarið verið handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Þá hafi komið í ljós að hann hafi verið eftirlýstur vegna annarra mála hjá lögreglu og vistaður í fangaklefa.
Í Hafnarfirði hafi verið um átök tengdra aðila að ræða og árásin talin minniháttar.