Að sögn breska ríkisútvarpsins voru nokkrir handteknir snemma í morgun og er mikill viðbúnaður viðbragðsaðila á svæðinu. Sprengjusérfræðingateymi breska hersins sinni nú rannsókn nokkurra bíla á svæðinu og hafi það verið girt af.
Lögreglan í Gloucester-skíri greindi frá því að íbúar í Whelford, þorpi í næsta nágrenni við Fairford-flugstöð breska flughersins, hefðu verið látnir yfirgefa heimili sín „í kjölfar tilkynningar um meiriháttar atvik.“
Bandaríski herinn hefur haft aðsetur á flugstöðinni frá því að átök Bandaríkjanna og Írans hófust í febrúar síðastliðnum.
Fréttin verður uppfærð.