Söng- og leikkonan Sigga Ózk, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, sigraði Ungfrú Ísland 2026 og tekur þátt í Miss Universe í Púertó Ríkó í nóvember.Sigga skaust fram á sjónarsviðið árið 2023 þegar hún tók fyrst þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Hún tók aftur þátt ári seinna og komst áfram í úrslit með lagið Um allan alheiminn.Hún hefur einnig getið sér gott orð sem leikkona og talsetti hlutverk Glindu í kvikmyndunum Wicked og Wicked: For Good. En hvað kom til að hún ákvað að stíga á svið fegurðarsamkeppna?
Sigga Ózk: „Eina sem skiptir máli er að hafa gaman“