Sígarettur voru lengi það sem fólk reyndi að losna við með því að færa sig yfir í rafrettur. Nú virðist þróunin í sumum tilvikum hafa snúist við og fólk er farið að grípa í sígarettur til að reyna að hætta að veipa.Bloomberg fjallar um þessa óvenjulegu þróun og segir dæmi um að fólk telji jafnvel auðveldara að losna síðar við sígaretturnar. Reykingar séu óþægilegri, lyktin verri og reykingamenn þurfi oft að fara út til að fá sér sígarettu. Rafrettan sé hins vegar gjarnan alltaf við höndina og því auðvelt að veipa nánast stöðugt.
Byrja aftur að reykja til að hætta að veipa – „Þetta er algjörlega galið“