Hringveginum við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna malbikunarframkvæmda. Lokunin varir til klukkan 7 í fyrramálið.
Fólki verður þó hleypt í gegnum framkvæmdasvæðið einu sinni, klukkan 22.
„Menn þurfa að vera komnir þarna fyrir tíu og tilbúnir í það að keyra yfir klukkan tíu. Það verður hleypt yfir fyrst í aðra áttina og svo í hina,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar.
„Það eru kannski fyrst og fremst ferðamennirnir sem eru þarna á ferð. Við vonum og óskum eiginlega eftir því að ferðaþjónustuaðilar séu duglegir við að koma skilaboðum til ferðamanna.“
Hann segir erfitt að gera ráð fyrir því hvort langar raðir myndist. Alla jafna er talsverð umferð um svæðið.
Framkvæmdirnar snúa að malbikun fjögurra kílómetra langs kafla vestan við Jökulsárbrú. Þar hefur áður verið klæðning.
„Það er mikil umferð og hæg sem þýðir það að klæðningin fer stundum illa þegar bílarnir eru í langri biðröð og fara hægt yfir klæðninguna. Við erum að setja betra slitlag þarna til að halda þessu í lagi,“ segir G. Pétur.