Lögreglan í Bretlandi hefur flutt á brott fjölda íbúa í bænum Whelford, nærri Fairford-herstöð breska flughersins í Gloucestershire-sýslu í suðvesturhluta Englands. Nokkrir menn hafa verið handteknir grunaðir um brot á lögum um sprengiefni.
Búið er að girða af stórt svæði í kringum herstöðina og hafa sprengjusérfræðingar verið kallaðir út. Lögregla segist hafa náð tökum á aðstæðum og hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag.
Í færslu á samfélagsmiðlinum X segir innanríkisráðherra, Shabana Mahmood, alla tiltæka viðbragðsaðila á svæðinu. Búið sé að ná tökum á aðstæðum.
„Á meðan á rannsókn stendur tel ég óviðeigandi að tjá mig frekar,“ skrifar Mahmood.
Í byrjun mars veitti Keir Starmer, þáverandi forsætisráðherra, bandaríska flughernum leyfi til að nýta herstöðina í varnaraðgerðum gegn Íran. Talsmaður bandaríska flughersins segir að starfsmenn á herstöðinni verði á varðbergi.
Bresk yfirvöld hafa boðað til blaðamannafundar síðar í dag.