Það er alvarleg þróun fyrir hina lægra launuðu að gerðar skuli breytingar á gjaldtöku fyrir leikskólavist sem fela í sér að hann sé jafnvel ókeypis fyrir þá sem þurfa ekki að hafa börnin þar allan vinnudaginn á meðan gjaldið hækkar verulega á þá foreldra sem þurfa að nýta sér allan daginn. Þetta ræðst gegn atvinnuþátttöku kvenna og ógnar lífskjörum einstæðra mæðra. Allt fer þetta gegn því sem stefnt var að við undirritun síðustu kjarasamninga. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Leikskólinn hættur að vera stuðningur við fjölskyldur svo þær geti framfleytt sér