„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“
Guðrún Pétursdóttir kynntist starfi Grensáss þegar systir hennar slasaðist. Hún er nú formaður Hollvina Grensáss og fékk Messenger-skilaboð frá ráðherra um að fjármagn hefði verið tryggt fyrir viðbyggingu.
Guðrún Pétursdóttir, lífeðlisfræðingur og prófessor emerita, er formaður samtakanna Hollvinir Grensásdeildar sem sinna fjáröflun fyrir endurbótum á deildinni og þrýsta á stjórnvöld um fjármagn fyrir mikilvæg verkefni. Hún hefur starfað með samtökunum nánast frá stofnun en hún kynntist deildinni fyrst þegar systir hennar slasaðist mjög alvarlega og lamaðist frá hálsi.
„Hún naut þjálfunar og aðstoðar Grensásdeildar í meira en ár,“ segir Guðrún. „Við fjölskyldan vorum nánast heimilismenn þarna á þeim tíma.“
Hún segir að flestir stjórnarmenn Hollvina Grensásdeildar hafi annaðhvort sjálfir verið á deildinni sem sjúklingar eða eigi einhvern ástvin sem hefur verið þar. „Maður lærir á eigin skinni hvaða kraftaverkastarfsemi fer þarna fram,“ segir Guðrún. „Því þessi stofnun lætur lítið yfir sér þarna uppi á hæðinni, falin á milli trjánna. En starfið sem fer fram þarna inni er einstakt. Það var magnað að vera þarna inni í meira en ár og fylgjast með fólki sem kom inn svo krambúlerað …