Eldur kviknaði á afgirtu geymslusvæði á Hellu á þriðja tímanum í dag. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki, að sögn Leifs Bjarka Björnssonar, slökkviliðsstjóra brunavarna Rangárvallasýslu.
„Þetta er geymslusvæði þar sem íbúar geta komið með sína gáma,“ segir hann.
Skemmdir urðu á plaströrum sem voru geymd á staðnum. Leifur segir umfang skemmdanna ekki liggja fyrir. „Ég held þetta sé töluvert eignatjón á plasti. Svo er girðing í kring sem sviðnaði líka og er líklega ónýt að hluta.“
Eldsupptök liggja ekki fyrir.