Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hefur fækkað um rúmlega 80% frá því árið 2023.
Í mars 2023 fengu 378 einstaklingar aðstoð en í júlí á þessu ári voru þeir 70 talsins. Fjallað var fyrst um málið í Víkurfréttum.
Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, segir að rekja megi fækkunina til fjöldamargra virkjunarúrræða og greiningar velferðarsviðs Reykjanesbæjar.
„Sem að kafaði bara ofan í þetta mengi og kom með lausnir á þessu með því að vera í góðum samskiptum við þá sem eru með bæði virkniúrræði,“ segir Vilhjálmur sem tekur fram að fyrst og fremst snúist lausnir um að koma fólki aftur í virkni. Samvinna hafi verið á milli velferðarsviðsins og Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, MMS, Vinnumálastofnunar og fleiri stofnana.
„Þetta var svona markviss greiningarvinna og virkniúrræðisvinna með fólkinu sem var á fjárhagsaðstoð og þannig náðist þessi árangur,“ segir Vilhjálmur.
Umsækjendum um alþjóðlega vernd fækkar
Vilhjálmur telur að ekki sé hægt að rekja breytinguna til brottflutninga úr sveitarfélaginu. Þó hefur fækkað í hópi þeirra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd.
„En sá hópur sem tengist því eða er með erlent ríkisfang er um helmingur af fækkuninni þannig að þetta er svona beggja blands,“ segir Vilhjálmur.
Einhverjir úr þessum hópi séu þó enn á landinu og komnir í virkni. Vilhjálmur segir að um 1200 umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi haft búsetu í Reykjanesbæ þegar mest lét en þeir séu um 150 í dag.