Algjört rafmagnsleysi hefur plagað íbúa Kúbu reglulega undanfarin misseri. Neyðarástand hefur verið í orkumálum allt þetta ár vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna og olíubirgðir eru af skornum skammti. Eldsneytisskortur og rafmagnsleysi bætast ofan á snarpar verðhækkanir og versnandi ástand í heilbrigðismálum á eyjunni.
„Mest allt rafmagn er unnið úr gömlu sovésku olíuveri sem er mjög sjaldan í gangi núna. Það verður svo heitt þarna og fólk getur þá ekki notað loftkælingu eða viftur og lífið því næsta óbærilegt. Lífið varð óbærilegt í sumar en Kúbverjar eru vanir því að lifa við óbærilegar aðstæður og hafa gert það áður. Þeir komust í gegnum sumarið. Nú er að koma vetur og aðeins svalara, ástandið verður því örlítið lífvænlegra, matvæli endast lengur og fólk á auðveldara með að sofa og annað slíkt,“ segir Hafliði Sævarsson.
Hann er stundakennari við deild mála og menningar við Háskóla Íslands. Hann lagði stund á kínversk fræði en þekkir einnig mjög vel til á Kúbu og tengist eyjunni fjölskylduböndum. Eiginkona Hafliða er frá Kúbu og þangað hefur hann ferðast reglulega undanfarin 20 ár.
„Þetta er auðvitað rosalega sárt fyrir hana og hún hugsar til þess á hverjum einasta degi. En þar sem hún býr hér er hennar fjölskylda í þessari forréttindastöðu eins og um 5% þjóðarinnar að geta þegið stuðning erlendis frá. Ég myndi meira að segja halda að slíkur stuðningur sé aðaltekjulind Kúbverja í dag. Hún hefur verið að hjálpa þeim að koma sér upp sólarrafhlöðum til að geta haft rafmagn yfir daginn og við í raun bara vonum það besta.“
Stríð og sjálfstæði
En staðan þar núna er bara einn kafli í langri sögu. Og áður en við rýnum í stöðuna núna og spáum í næstu skref skulum við bakka aðeins.
Vindlar, kaffi, sykur, romm og tónlist er kannski það fyrsta sem flestum dettur í hug þegar minnst er á Kúbu, eyríkið sem liggur á mörkum Karíbahafs, Atlantshafs og Mexíkóflóa. Þar hefur fólk búið í þúsundir ára en Spánverjar tóku eyjuna yfir á 15. öld. Spánverjar voru sem kunnugt er frekir til fjörsins í landvinningum á fjarlægari slóðum og Kúba fór ekki varhluta af því.
Undir lok 19. aldar var Kúbverja farið að þyrsta í sjálfstæði og nágrannaríkið Bandaríkin studdi þá í baráttu sinni við stjórn Spánverja. Snemma árs 1898 varð sprenging í bandarísku herskipi í höfninni í Havana, nokkuð sem Bandaríkjamenn kenndu Spánverjum alfarið um.
Friðarsáttmáli var á endanum undirritaður síðar þetta sama ár milli Bandaríkjanna og Spánar þar sem þeir síðarnefndu létu eftir yfirráð á Kúbu, ásamt Púertó Ríkó og Filippseyjum. Ekki þótti tilefni til að bjóða fulltrúum Kúbu á þennan fund um eignaskipti yfir landinu þeirra.
Fjórum árum eftir friðarsamning Bandaríkjanna og Spánar fengu Kúbverjar þó sjálfstæði, en þó ekki án afskipta Bandaríkjanna.
„Kúbverjar berjast fyrir sjálfstæði og fá sjálfstæði 1902 og gera í raun þar samning við Bandaríkjamenn því Bandaríkjamenn smeygðu sér inn þarna alveg í lokin á borgarastríðinu við Spánverja 1898 og tóku yfir eyna. Þá var búið að vera borgarastríð þarna mjög lengi og björninn var í raun unninn en þá koma Bandaríkjamenn inn og taka yfir eyna og gera samning þar sem áskilja sér rétt til að blanda sér í mál eyjarinnar og eigna sér landsvæði í Guantanamo þar sem þeir eru með herstöð. Þetta er 1902,“ útskýrir Hafliði.
Castro mætir til leiks
Þar hófst sem sé þessi formlega samtvinnaða saga nágrannaríkjanna Kúbu og Bandaríkjanna. Það voru ýmsir vaxtarverkir hjá nýsjálfstæðri Kúbu að koma á stöðugleika í stjórnsýslunni og víðar. Og alltaf var Bandaríkjastjórn á kantinum. Hér er stiklað á stóru en herforinginn Fulengio Batista, sem hafði verið kjörinn forseti 1940, komst aftur til valda 1952 með stuðningi Bandaríkjastjórnar og ríkti sem einræðisherra á Kúbu í nokkur ár.
Fram til 1959 þegar Fidel Castro leiddi byltingu og hafði betur. Byltingarstjórnin tók við og kúbverski kommúnistaflokkurinn var stofnaður skömmu síðar. Kommúnismi hefur alltaf verið eitur í beinum stjórnvalda í Bandaríkjunum sem settu viðskiptabann á Kúbu árið 1960. Viðskiptabann sem enn er í gildi.
„Þannig við erum að tala þarna um 65 ár. Mér skilst að það sé lengsta viðskiptabann samtímans og þess vegna bara mannkynssögunnar. Það hefur verið næstum því algjört og nú er það algjört. Ég veit ekki einu sinni til þess að það sé verið að banna olíuinnflutninga til Norður-Kóreu. Við erum eyjaskeggjar hér á Íslandi svo við skiljum mjög fljótt hvaða vandræði fylgja svona viðskiptabanni eins og er á Kúbu. Flutningur á matvælum er hreinlega ekki mögulegur. Kúbverjar eru úrræðagóðir og allt það en matur er bara að rotna heima hjá fólki og í vöruhúsum. Almenningssamgöngur hafa hrunið. Rútusamgöngur á milli borga og bæja er bara í algjöru volli. Að setja olíubann á land, frá heilbrigðu mannúðar- og sanngirnissjónarmiði þá er þetta í raun bara fáránlegt,“ segir Hafliði.
Blómaskeið og heimsfaraldur
Þrátt fyrir viðskiptabannið langlífa sem nú bítur mjög fast hafa komið blómaskeið á Kúbu. Á meðan Sovétríkin voru og hétu gátu þessir óvinir Bandaríkjanna staðið saman, Kúbverjar keyptu olíu í skiptum fyrir sykur áður en Sovétríkin liðu undir lok.
„Sovétmenn höfðu verið að kaupa sykur og aðrar vörur af þeim á yfirverði og þá í raun að fjármagna frekar háan lífsstandard á eynni. Svo hverfur það og það tók þá nokkur ár að bregðast við því, og það er kallað þetta sérstaka tímabil. Þá var Fidel Castro við völd og hann vissi svolítið það sama og við vissum eftir hrun að það væri alltaf hægt að halla sér að ferðamennskunni. Það tókst í rauninni. Sovétríkin falla 1991 og um 15 árum síðar er talsverður uppgangur á Kúbu og ferðamannaiðnaðurinn gengur bara mjög vel,“ segir Hafliði.
Það gekk vel en stjórnvöld settu svo til öll eggin í sömu körfu ferðamannaiðnaðarins. Og svo kom jú covid munið þið.
„Kúbversk stjórnvöld eru alveg gjörsamlega búin að grafa sig ofan í holu. Til dæmis í Havana, ef maður á að lýsa þessu myndrænt þá er þar að sjá rosalega frægt hótel sem átti að verða Hilton-hótel þegar byltingin var 1959 og var svo kallað Havana Libri og við hliðina á því að búa að byggja hótel sem er tvöfalt stærra sem stendur bara autt í dag, 42 hæðir held ég. Þannig að í staðinn fyrir það að veita fjármunum í að styrkja rafveitukerfið, byggja bæta vegi, styrkja lestarkerfið og þá fór allt í það að byggja hótel og nú eru engi túristar að koma þannig að þá eru allar fjárfestingar ríkisins undanfarin ár til einskis. Þannig að þetta tvöfalda högg, COVID og svo þetta innflutningsbann á olíu sem að stjórnvöld í Bandaríkjunum eru búin að setja er í rauninni búið að einangra kúbversk stjórnvöld í aðstæðum þar sem þau geta í rauninni eiginlega ekki gert. Þau eru bara það illa stödd,“ segir Hafliði.
Chanel og Rolex á meðan almenningur sveltur
Á Kúbu er að nafninu til ríkisrekið velferðarkerfi, menntun og heilsugæsla er ókeypis, en lítil sem engin stemning er fyrir lýðræðislegri umræðu. Stjórnarandstaða er bönnuð og fjölmiðlar ritskoðaðir. Stjórnarhættir Kommúnistaflokksins í bland við áratuga viðskiptabann Bandaríkjanna bitna bara á einum hópi, íbúum landsins.
„Ég held að mikill meirihluti þjóðarinnar sé kominn með alveg gjörsamlega nóg af ástandinu og stjórnvöldum á Kúbu eins og þau eru núna. Fólk sem ég ræddi við fyrr þegar ég var þarna fyrr á þessu ári, töluðu flest um það í þessu samhengi að á meðan Fidel var við völd þá hlustaði hann á þarfir fólksins og passaði upp á að fólk hefði í sig og á. Kannski ekki nóg, en þó þannig að fólk gæti lifað mannsæmandi lífi. Fólkið ber enga virðingu fyrir núverandi stjórnvöldum. Til dæmis þessi dóttursonur hans Raúl Castro mætti í viðtal á dögunum til USA Today. Þangað mætti hann í Chanel-jakka, með Ferragamo-handtösku og Rolex-úr. Þegar hann var spurður hvar hann hefði fengið þetta sagði hann að þetta væru allt gjafir. Svona er ástandið á efsta laginu í kúbversku samfélagi. Mér finnst alltaf íslenska orðatiltækið að byltingin éti börnin sín eiga vel við. Þarna er komin einhver innilokuð klíka sem er að metast um hver er í flottustu skyrtunni og reyna að ríghalda í völd eins og kerfið er núna, en eru einnig farin að búa sig undir hvað gerist næst. Svona að koma sér í rétta stöðu á taflborðinu til að þau verði hluti af því sem gerist næst,“ segir Hafliði.
Þarna var minnst á dótturson Raúl Castro. Það er auðvitað alls ekki hægt að bjóða upp á umfjöllun um Kúbu án þess að nafnið Castro komi fyrir reglulega. Við minntumst aðeins á Fidel Castro áðan. Bróðir hans, Raúl Castro, tók við stjórnartaumunum á Kúbu 2008 og varð aðalritari kúbverska kommúnistaflokksins 2011. Hann er nú 95 ára og hættur að nafninu til í stjórnmálum, þó áhrif hans og völd séu enn ótvíræð.
Hann heitir Miguel Díaz-Canel sem nú er forseti og aðalritari kommúnistaflokksins, sá fyrsti frá 1959 sem ekki heitir Castro að eftirnafni.
„Vandamálið er að hann er bæði forseti landsins og formaður flokksins. Það þarf að koma honum frá. Ég held að bæði Bandaríkjamenn og Kúbverjar séu sammála um það, meira að segja fólk innan kommúnistaflokksins. Honum hefur ekki tekist að koma á neinum breytingum sem laga ástandið á Kúbu. Vandamálið er að Kommúnistaflokkurinn ákveður hver er forsetinn og því þyrfti hann að reka sjálfan sig sem er kannski ekki að fara að gerast,“ segir Hafliði.
Hófleg bjartsýni um breytingar
Nýverið samþykktu stjórnvöld margvíslegar breytingar sem eiga að vera landsmönnum til góða, breytingar sem íbúar Kúbu taka með takmarkaðri bjartsýni um betri tíma.
„Það voru 176 stórvægilegar breytingar kynntar og samþykktar á kúbverska þinginu. Til dæmis að brottfluttir Kúbverjar mega nú eiga fyrirtæki á eynni, fyrirtæki mega eiga gjaldeyrisreikninga og fyrirtæki mega flytja vörur beint inn og þurfa ekki að fara í gegnum ríkisfyrirtæki sem bæta miklu ofan á vörurnar. Þannig að það eru alveg kontret breytingar í gangi en álíka hlutir hafa verið reyndir áður og svo hafa stjórnvöld alltaf dregið til baka,“ segir Hafliði.
„Það er ekkert plan, það er enginn kandídat. Kúbversk stjórnvöld eru í raun búin að grafa sig niður í djúpa holu og bandarísk stjórnvöld eru föst í dimmu húsasundi þar sem þau komast ekki til baka í þessu máli líka.“
Nágranninn valdamikli
Viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna eiga ekki aðeins við Kúbu heldur hefur Trump sömuleiðis veifað tolla-trompinu sínu gegn þeim þjóðum sem íhuga að selja Kúbverjum olíu. Þó viðskiptaþvinganir Bandaríkjamanna hafi nú varað í áratugi hafa samskiptin við Kúbu þó aðeins sveiflast eftir því hver situr í Hvíta húsinu.
Samskiptin bötnuðu aðeins í stjórnartíð Baracks Obama, örlítil þýða komst á viðskiptafrostið og Obama heimsótti Kúbu 2016.
Trump tók við af Obama og afturkallaði alls kyns ákvarðanir forvera síns. Á seinna kjörtímabili sínu hefur Trump enn hert viðskiptaklóna á nágrannaríkið í suðri.
Einhverjir hefðu nú kannski haldið að Trump-stjórnin léti sig málið varða og verið með eitthvað plan og framtíðarsýn, umfram algjört viðskiptabann. Bæði er stutt á milli Kúbu og íverustaðar forsetans Mar A Lago, bara nokkur hundruð kílómetrar. Þá er utanríkisráðherrann Marco Rubio af kúbverskum ættum.
„Það var það sem ég hélt fyrst þegar þeir settu þetta olíuinnflutningsbann á en það sem síðar hefur komið í ljós eru yfirlýsingar um að taka yfir Kúbu án þess að útlista eitthvað
hvernig það á að gerast. Marco Rubio er núna farinn að tala um að ástandið á Kúbu verði orðið svo slæmt eftir tvö ár, þegar kjörtímabili Trumps lýkur, að það verði ekki hægt að snúa þessu við. Sem þýðir að þetta er í raun bara eyðileggingarstefna. Það sem er verst við það er að þessi ódannaða elíta á Kúbu virðist vera að stefna í sömu átt. Þau eru öll á sama báti virðist vera. En fyrir utan hann standa 95% kúbversku þjóðarinnar sem býr við sára örbirgð í dag,“ segir Hafliði.
Þau fara sem geta
Ef við spáum svo í framtíðina er ólíklegt að Kúbverjar ákvarði hana án afskipta hins valdamikla nágranna, Bandaríkjanna.
„Það er jafn langt að keyra frá Keflavík til Hellu og að sigla yfir frá Flórída og Kúbu. Það er fullt af Kúbverjum sem búa í Bandaríkjunum og í gegnum tíðina hafa mjög margir Bandaríkjamenn flust til Kúbu til að stunda landbúnað, hótelrekstur, reka golfvelli eða annað slíkt svo þetta eru alveg rosalega náin tengsl,“ segir Hafliði.
„Flestir Kúbverjar vilja ekki bandarísk yfirráð á eynni, það hefur verið viðhorfið alveg síðan 1902. Kúba varð sjálfstætt ríki og geta ekki hugsað sér að verða það ekki. En Kúbverjar vilja breytingar og ég held að langflestir vilji aðstoð Bandaríkjanna við breytingar svo fólk í raun og veru bara situr og bíður í hitanum.“
Það sem óhjákvæmilega gerist er að þau sem eiga þess kost fara. Wet Foot/Dry Foot, eða blautur og þurr fótur, var hún kölluð stefna Bandaríkjanna til fólks frá Kúbu frá 1995. Ef flóttamaður frá Kúbu var stöðvaður á hafi úti, með blautan fót þá, var honum samstundis vísað aftur til Kúbu. Ef hann hins vegar komst yfir til Bandaríkjanna, með þurran fót sem sé, gat hann sótt um dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Þetta var hins vegar afnumið 2017 svo þau sem flýja fara helst til Mexíkó, Ekvador og Brasilíu.
„Allir sem komast í burtu, sérstaklega unga fólkið,“ segir Hafliði.
Hvaða þýðingu hefur það? Hvernig er framtíðarsýnin á Kúbu?
„Hún er auðvitað bara mjög grimm. Eins og ástandið er núna verða fimm ár aldrei nóg til að snúa ástandinu til betri vegar. Segjum sem svo að þeir fengju besta samninginn sem völ er á við Bandaríkin á morgun þá tæki 1-2 ár að byrja að snúa ástandinu til betri vegar og svo það væri ekki fyrr en eftir kannski 10 ár sem staðan færi að verða þokkalegri.“