Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir - Vísir

Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir - Vísir

Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir - Vísir

Anna fékk ekki Tourette-greiningu fyrr en árið 2023. Þá hafði hún verið með kæki frá barnæsku og lengi vanist því að fylgjast með eigin hreyfingum og reyna að halda þeim niðri. Greiningin gaf skýringu á mörgu sem hún hafði ekki skilið áður en breytti því þó ekki sjálfkrafa hvernig hún sá sjálfa sig.

Hélt lengi að hún væri bara skrýtin

Anna er fædd árið 1996 og alin upp á Brandsstöðum í Blöndudal en í dag er hún búsett á Blönduósi ásamt unnusta sínum, Gunnari Inga Jósepssyni.

Kækirnir komu snemma fram.

„Ég vissi að ég væri með kæki frá því ég var pínulítil. Ég var alltaf að gera eitthvað með andlitið og hreyfa hausinn. Það voru allavega tveir strákar í bekknum mínum sem gerðu grín að mér og spurðu: Af hverju ertu alltaf að gera þetta? Þá fór ég bara að berja mig niður. Ég hugsaði svo oft: „Ég vildi óska að ég gæti hætt þessu. Af hverju get ég ekki bara hætt? Hvað er í gangi með mig?“

Sambandið við Gunnar nær aftur til unglingsáranna. Þau kynntust á heimavistinni við MH þegar Anna var fimmtán ára og Gunnar sautján og hafa verið saman síðan. Gunnar starfar sem tónlistarkennari og hefur því séð kækina koma og fara löngu áður en Anna fékk Tourette-greiningu.Aðsend

Það var ekki fyrr en í menntaskóla sem Anna heyrði tourette nefnt með þeim hætti að hún fór að tengja það við eigin reynslu. Stærðfræðikennari hennar tók fram í fyrsta tíma að hann væri sjálfur með tourette. Fram að því hafði Anna ekki almennilega áttað sig á því hvað tourette væri. Allt í einu var komið nafn yfir eitthvað sem hún hafði lengi upplifað sem eitthvað skrýtið við sjálfa sig. Í fjölskyldunni voru líka vísbendingar. Föðursystir Önnu, sem er jafnframt guðmóðir hennar, er með Tourette-greiningu og fleiri fjölskyldumeðlimir eru með kæki án þess að hafa farið í formlegt mat.

Greiningin kom ekki fyrr en 2023

Kækirnir héldu áfram að breytast með árunum. Sumir komu og fóru en aðrir héldust lengi. Einn sá þrálátasti fólst í því að spenna magavöðvana ört og endurtekið og sá kækur fylgdi Önnu í um fimm ár. Hún lýsir því hvernig athugasemdir frá fólki í kringum hana urðu til þess að hún varð enn meðvitaðri um hreyfingarnar.

„Ég var alltaf að spenna magann á mér og hugsaði: „Af hverju get ég ekki hætt þessu?“ Það gerði ástandið oft bara verra. Ég fékk líka alveg frá fjölskyldumeðlimum: „Hættu þessu nú.“ En ef ég hefði val um að gera þetta eða gera þetta ekki þá myndi ég auðvitað ekki gera þetta. Af hverju ætti ég að velja að gera eitthvað sem lætur mér finnast ég vera asnaleg?“

Vendipunkturinn kom árið 2023 þegar sálfræðingur tók eftir kækjunum og spurði Önnu hvort hún væri með Tourette. Í kjölfarið leitaði hún til heimilislæknis og fór yfir einkennin og sögu sína með honum. Þá fékk hún loks formlegt nafn á það sem hafði fylgt henni frá því hún var lítil.

Greiningin varpaði meðal annars nýju ljósi á þrálátan hósta sem Anna hafði glímt við í fjögur til fimm ár. Hún hafði farið á milli lækna, fengið mismunandi meðferðir og farið í rannsóknir án þess að skýring fyndist.

Anna getur stundum haldið kækjunum niðri tímabundið en það kostar sitt. Hún reynir það helst við aðstæður þar sem henni finnst sérstaklega erfitt að fá kæki, til dæmis á fundum eða í jarðarförum. Eftir slíka bælingu upplifir hún gjarnan að kækirnir komi sterkari til baka.Aðsend

„Ég þurfti í raun ekkert að hósta. Ég var búin að fara til fullt af læknum og fá þrjú mismunandi púst fyrir asma en ég er ekki með asma. Ég fékk líka töflur við bakflæði og fór til háls-, nef- og eyrnalæknis sem skoðaði hálsinn. Það fannst aldrei neitt. Þegar sálfræðingurinn minn spurði hvort ég væri með Tourette opnaðist þetta allt. Þá vorum við og kærastinn minn bara: „Oh my god, hvernig sáum við þetta ekki áður?“ Þetta var svo augljóst eftir á.“

Getur haldið kækjunum niðri

Kækirnir hafa birst á ýmsa vegu. Anna hefur meðal annars blikkað mikið, hreyft höfuðið og hálsinn, spennt vöðva og hóstað. Hljóðkækirnir hafa sömuleiðis breyst og stundum gefur hún frá sér mjálm.

Fyrir þann sem horfir utan frá getur verið erfitt að skilja hvers vegna ekki sé einfaldlega hægt að stöðva kæk. 

Anna lýsir því þannig að hún finni oft ákveðna þörf eða hvata byggjast upp áður en hún framkvæmir hreyfinguna. Við ákveðnar aðstæður reynir hún þó af fremsta megni að halda kækjunum niðri.

„Það kemur svona tilfinning og ég bara verð að gera þetta. Þetta er líka rosalega ósjálfrátt og stundum gerist þetta án þess að ég taki almennilega eftir því. Ef ég er til dæmis í jarðarför þá get ég bælt þetta niður tímabundið. En þegar mómentið er búið þá kemur allt til baka á milljón. Sálfræðingurinn minn hefur kennt mér öndunartækni sem getur hjálpað mér að bíða aðeins, en það virkar þó ekki alltaf.“

Anna hefur líka orðið vör við augnaráð og spurningar vegna kækjanna. Á sama tíma var hún lengi treg til að segja fólki frá Tourette greiningunni. Hún óttaðist að greiningin yrði það fyrsta sem fólk tæki eftir við hana. Hana langaði ekki að verða „gellan með Tourette“.

Tónlistin hefur lengi skipað stóran sess í lífi Önnu. Röddin er hennar aðalhljóðfæri og hún hefur jafnframt níu ára píanónám að baki. Hún byrjaði ung að koma fram og árið 2010 var hún meðal einsöngvara á hátíðartónleikunum Söngur um sólstöður í Blönduósskirkju og Hólaneskirkju og ári síðar var hún aftur meðal söngvara á tónleikum með nemendum og kennurum Tónlistarskóla Austur-Húnavatnssýslu.

Sviðið hefur hins vegar verið fjarri henni undanfarin ár. Síðast kom Anna fram árið 2019 þegar hún söng í brúðkaupi bróður síns. Kækirnir eru ekki eina ástæðan en þeir hafa átt sinn þátt í því.

Streita getur aukið kækina og þar verður auðveldlega til vítahringur. Óttinn við að byrja að tikka á sviðinu veldur stressi sem getur svo aftur aukið kækina. Anna hefur óttast að þeir skyggi á sönginn og verði það sem áhorfendur muni eftir.

Kynntust sem unglingar

Tónlistin tengir Önnu og Gunnar eiginmann hennar líka saman. Gunnar starfar sem tónlistarkennari og hefur verið við hlið hennar löngu áður en Tourette-greiningin kom til sögunnar.

Þau kynntust á heimavistinni við VMA þegar Anna var fimmtán ára, að verða sextán, og Gunnar sautján ára. Gunnar er frá Húsavík en Anna úr Blöndudal. Þau hafa nú verið saman í fjórtán ár.

Þegar þau byrjuðu saman árið 2012 vissi Anna enn ekki að kækirnir sem höfðu fylgt henni frá barnæsku tengdust Tourette. Um það leyti fór magakækirinn að gera vart við sig og hún man eftir því að hafa brotnað niður yfir því hvers vegna hún gæti ekki stöðvað hann.

Gunnar hefur því séð ýmiss konar kæki koma og fara í gegnum samband þeirra. Í dag eru þeir orðnir svo hversdagslegir fyrir hann að viðbrögð hans við þeim eru allt önnur en viðbrögð Önnu sjálfrar.

Það kom glögglega í ljós þegar þau settust nýlega niður heima og tóku saman upp lagið Wicked Game.

Sá bara kækina en heyrði ekki sönginn

Þegar Anna hlustaði fyrst á hljóðupptökuna var hún hæstánægð. Þegar hún sá myndbandið breyttist það.

Augun fóru beint á kækina.

Gunnar skildi varla hvað hún átti við.

„Þegar ég hlustaði bara á hljóðið fyrst hugsaði ég: „Vá, hvað þetta tókst vel hjá okkur.“ Svo klippti ég vídeóið saman og þá var ég bara: Nei, þetta er hræðilegt. Ég þoli ekki sjálfa mig. Ég spurði Gunnar hvort hann tæki ekki eftir því hvað ég væri með mikla kæki og hann bara: „Nei, ég veit ekki hvað þú ert að tala um.“ Ég hef ekki þorað að koma fram í sjö eða átta ár af mörgum ástæðum en þetta er alveg ein af þeim. Stress „triggerar“ þetta rosalega mikið. Ég hef verið hrædd við að fara upp á svið, að kækirnir fari á fullt, og að það verði það eina sem fólk eigi eftir að muna.“

Fyrstu viðbrögð Önnu voru að vilja ekki birta myndbandið. Hún hafði gert það sama oft áður, sérstaklega á TikTok þar sem rúmlega tíu þúsund manns fylgjast með henni. Þar hafði hún vanið sig á að velja upptökur þar sem kækirnir sáust lítið eða einfaldlega klippa þá út.

Sama sjálfsmeðvitund hafði ratað inn í hlaðvarpið Áhugavaldar sem hún heldur úti með bróður sínum, Ara Brynjólfssyni.

„Í fyrsta þættinum í podcastinu sagði ég bara: „Disclaimer, ég er með Tourette.“ Svo í þriðja þættinum reyndi ég samt að klippa eins mikið og ég mögulega gat út. Ég var í klukkutíma að klippa þetta og það var ógeðslega mikil vinna. Núna í síðustu þáttum er ég bara búin að láta þetta „slæda“. Ég fer bara að hósta eða það koma skrýtin hljóð. Stundum mjálma ég jafnvel og þá förum við bróðir minn bara að hlæja. Mér finnst þetta mjög frelsandi.“

Í dag vill Anna eyða minni orku í að fela Tourette. Hún er farin að láta kæki standa í myndböndum og hlaðvarpsupptökum í stað þess að laga þá burt. Markmiðið er ekki að láta Tourette skilgreina sig heldur að draga úr þeirri pressu sem hefur fylgt því árum saman að reyna að fela það.Aðsend

„Fokk it, I don't care“

Að þessu sinni ákvað Anna að birta myndbandið í færslu á Facebook, þar sem hún tjáði sig jafnframt opinskátt um Tourette, skömmina sem hún hafði tengt við kækina og hversu mikilli orku hún hefur varið í að fela þá.

Viðbrögðin komu henni á óvart. Færslan fékk mun meiri athygli en annað sem hún hafði áður birt og athugasemdirnar voru nær undantekningarlaust jákvæðar. Hún fékk líka einkaskilaboð frá ókunnugu fólki sem þakkaði henni fyrir að deila reynslunni.

Sjálf hafði hún búist við öðru.

„Núna er ég bara komin á þetta stig að hugsa bara: „Fokk it, I don't care.“ Í næsta vídeói sem ég set út ætla ég bara að hafa þetta inni. Þetta Tourette-dæmi getur verið svo lýjandi og þreytandi. Fólk sér kannski bara einhvern kæk og stundum getur þetta alveg verið fyndið. Ef ég mjálma eða eitthvað þá get ég alveg hlegið að því sjálf. En það er fyndið í fimm sekúndur. Að vera með þetta í gangi allan daginn, alla daga, það tekur gífurlega mikið á, bæði andlega og líkamlega.“

Vill hætta að leggja pressuna á sig

Anna starfaði áður á leikskóla en er nú á örorku vegna MS og kvíða. Á meðan hún starfaði á leikskólanum fékk hún MS-kast sem hafði mikil áhrif á vinstri höndina og gat hún meðal annars ekki lengur haldið á börnunum með henni. Í kjölfarið tók við erfitt tímabil þar sem kvíðinn jókst mikið.

Í dag vinnur hún að verkefnum sem hún getur sinnt á sínum forsendum. Hún heldur áfram með TikTok, er með hlaðvarpið ásamt bróður sínum og hefur áhuga á að byggja upp efnisgerðina frekar.

Ákvörðunin um að hætta að klippa kækina út snýst ekki um að láta Tourette skilgreina sig. Anna segist einfaldlega vera orðin þreytt á þeirri aukavinnu sem fylgir því að reyna stöðugt að fela það.

„Ég er búin að fela þetta svo lengi af því mér fannst ég svo asnaleg. En þetta er partur af mér og ég get ekki falið þetta endalaust. Allir mínir nánustu taka eftir þessu og þeir eru örugglega líka hættir að taka eftir þessu. Núna hugsa ég bara: „Nei, ég ætla að leyfa þessu að vera. Ég þarf að leyfa mér að vera eins og ég er þegar ég er að tala við fólk. Ég nenni ekki lengur að vera með þessa pressu á sjálfri mér. Ég ætla að minnka pressuna á sjálfa mig og bara leyfa mér að vera eins og ég er.“

#eyddi #fela #mörgum #árum #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262940261d/eyddi-morgum-arum-i-ad-fela-thad-sem-adrir-toku-varla-eftir

📰 Aðrar fréttir

Byrja aftur að reykja til að hætta að veipa – „Þetta er algjörlega galið“
📅 27.09.2026 👁️ 1
Byrja aftur að reykja til að hætta að veipa – „Þetta er algjörlega galið“
Sígarettur voru lengi það sem fólk reyndi að losna við með því að færa sig yfir í rafrettur. Nú virðist þróunin í sumum tilvikum hafa snúist við og fó...
„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“
📅 27.09.2026 👁️ 1
„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“
„Manni er vel tekið þegar maður safnar fyrir Grensás“ Guð­rún Pét­urs­dótt­ir kynnt­ist starfi Grens­áss þeg­ar syst­ir henn­ar slas­að­ist. Hún er nú...
Manchester City charges: What punishment could club face after Premier League verdict and will they appeal?
📅 27.09.2026 👁️ 1
Manchester City charges: What punishment could club face after Premier League verdict and will they appeal?
It has taken more than two years, but a judgement finally appears to have been made on the 115 charges levelled against Manchester City. Here's what i...
Slökkvi­lið kallað út í Hafnar­fjörð - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 1
Slökkvi­lið kallað út í Hafnar­fjörð - Vísir
Þetta staðfestir Sigurjón Hendriksson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynnt var um ljósan reyk koma frá lyftuhúsi.  Bíll frá sl...
Orange Order march row goes to heart of ongoing divisions in Northern Ireland
📅 27.09.2026 👁️ 1
Orange Order march row goes to heart of ongoing divisions in Northern Ireland
The dispute over the controversial parade is a reminder that the peace process is not over.
Kamilla Bretadrottning sögð brjáluð
📅 27.09.2026 👁️ 2
Kamilla Bretadrottning sögð brjáluð
Kamilla Bretadrottning mun vera bálreið yfir því að ekki hafi tekist að stöðva útgáfu bókar sem bróðir Díönu prinsessu hefur ritað um líf systur sinna...
Sigga Ózk: „Eina sem skiptir máli er að hafa gaman“
📅 27.09.2026 👁️ 2
Sigga Ózk: „Eina sem skiptir máli er að hafa gaman“
Söng- og leikkonan Sigga Ózk, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, sigraði Ungfrú Ísland 2026 og tekur þátt í Miss Universe í Púertó Ríkó í nóvember.Sigga sk...
Þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ fækkar um 80%
📅 27.09.2026 👁️ 2
Þeim sem þiggja fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ fækkar um 80%
Fólki sem þiggur fjárhagsaðstoð í Reykjanesbæ hefur fækkað um rúmlega 80% frá því árið 2023.Í mars 2023 fengu 378 einstaklingar aðstoð en í júlí á þes...
Fimm hand­teknir og grunaðir um skipu­lagningu hryðjuverks - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Fimm hand­teknir og grunaðir um skipu­lagningu hryðjuverks - Vísir
Í kjöfarið var stórt svæði kringum bílana, í um fjögur hundruð metra radius frá bílunum þremur, rýmt. Þá voru 85 heimili í þorpinu Whelford rýmd. Sjá ...
Sprengjusérfræðingar kemba svæði í kringum breska herstöð
📅 27.09.2026 👁️ 2
Sprengjusérfræðingar kemba svæði í kringum breska herstöð
Lögreglan í Bretlandi hefur flutt á brott fjölda íbúa í bænum Whelford, nærri Fairford-herstöð breska flughersins í Gloucestershire-sýslu í suðvesturh...
Slökkviliðið kallað að grunnskólanum í Borgarnesi
📅 27.09.2026 👁️ 2
Slökkviliðið kallað að grunnskólanum í Borgarnesi
Slökkviliðið í Borgarbyggð var kallað að grunnskólanum í Borgarnesi laust fyrir klukkan eitt vegna gruns um eld. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var ...
Svarthöfði skrifar: Landsmálafélagið Vinir Garðabæjar
📅 27.09.2026 👁️ 2
Svarthöfði skrifar: Landsmálafélagið Vinir Garðabæjar
Vinstri græn sendu tölvupóst á félagsmenn í síðustu viku þar sem fagnað var ógurlega þeirri niðurstöðu skoðanakönnunar að þessi fyrrverandi stjórnmála...
Hópur unglinga réðst á karlmann á sextugsaldri í Mjóddinni
📅 27.09.2026 👁️ 2
Hópur unglinga réðst á karlmann á sextugsaldri í Mjóddinni
Einn var fluttur á sjúkrahús með áverka á höfði eftir að hópur unglinga veittist að 15 ára ungmenni og karlmanni á sextugsaldri í Mjóddinni í gær. Frá...
Vill gera á Vestur­bakkanum það sem gert var á Gasa - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 1
Vill gera á Vestur­bakkanum það sem gert var á Gasa - Vísir
Þetta kemur fram í viðtali við ísraelska miðilinn Ynet í aðdraganda þingkosninga í Ísrael 27. október, þeirra fyrstu frá hryðjuverkaárásinni sjöunda o...
Ætla ekki að hvika frá skilyrðum um opnun Hormússunds
📅 27.09.2026 👁️ 1
Ætla ekki að hvika frá skilyrðum um opnun Hormússunds
Írönsk stjórnvöld standa föst á skilyrðum sínum fyrir því að opna Hormússund fyrir skipaflutningum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnaði skilyrðunum...
Segir merki­legt að einkaskilaboð séu rædd á Al­þingi - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Segir merki­legt að einkaskilaboð séu rædd á Al­þingi - Vísir
Stefán Vagn Stefánsson, þingflokksformaður Framsóknar, og Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, voru gestir Páls Magnússonar á Sprengisan...
Beitti úðavopni á veg­far­endur - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Beitti úðavopni á veg­far­endur - Vísir
Fyrr í morgun var greint frá tveimur líkamsárásum í gærkvöldi eða nótt, einni í miðborg Reykjavíkur og annarri í hverfi 221 í Hafnarfirði. „Í miðborgi...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Leikskólinn hættur að vera stuðningur við fjölskyldur svo þær geti framfleytt sér
📅 27.09.2026 👁️ 1
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Leikskólinn hættur að vera stuðningur við fjölskyldur svo þær geti framfleytt sér
Það er alvarleg þróun fyrir hina lægra launuðu að gerðar skuli breytingar á gjaldtöku fyrir leikskólavist sem fela í sér að hann sé jafnvel ókeypis fy...
Sex­tán ára ung­lingar sóttir í bæinn eftir af­skipti lög­reglu - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Sex­tán ára ung­lingar sóttir í bæinn eftir af­skipti lög­reglu - Vísir
Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að lögreglu hefðu borist vísbendingar um að fjöldi fólks undir aldri væ...
Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
📅 27.09.2026 👁️ 2
Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni Dr. Youn­is Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palestínu. Hann lýs­ir að­stæð­um á vett­vangi um lei...
AtNorth greiðir fyrir uppbyggingu tjaldsvæðis á Akureyri
📅 27.09.2026 👁️ 1
AtNorth greiðir fyrir uppbyggingu tjaldsvæðis á Akureyri
Deilur hafa staðið um stækkun lóðar AtNorth til vesturs, við rætur Hlíðarfjalls á Akureyri. Margar athugasemdir bárust um deiliskipulagsbreytinguna og...
Svara verði í hvaða um­boði skila­boðin voru send - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Svara verði í hvaða um­boði skila­boðin voru send - Vísir
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að svara verði í hvaða umboði fyrrverandi aðstoðarmaður Guðmundar Inga hafi sent skilaboðin umdeildu þar ...
'Scourge' of abuse must be rooted out, says Pope, during Lourdes visit
📅 27.09.2026 👁️ 2
'Scourge' of abuse must be rooted out, says Pope, during Lourdes visit
Pope Leo spoke to bishops before leading a service attended by thousands of worshippers in France.
Maður á sex­tugs­aldri með á­verka á höfði eftir á­rás ung­menna - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Maður á sex­tugs­aldri með á­verka á höfði eftir á­rás ung­menna - Vísir
Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að um hafi verið að ræða ungmenni á bilinu 15 til 20 ára. Lögregla viti...
Alvarleg líkamsárás í Mjódd í gærkvöldi
📅 27.09.2026 👁️ 2
Alvarleg líkamsárás í Mjódd í gærkvöldi
Tilkynnt var um alvarlega líkamsárás í Mjóddinni í Breiðholti í Reykjavík á ellefta tímanum í gærkvöld.Hópur ungmenna, flest á aldrinum 15–20 ára, vei...
Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar - Vísir
Greint var frá því í gærkvöldi að Óraníureglunni, mótmælendasamtök á Norður-Írlandi nátengd vopnuðum sveitum sambandssinna á síðustu öld, hefði verið ...
Ökumenn verða að vera tímanlega til að vera hleypt yfir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Ökumenn verða að vera tímanlega til að vera hleypt yfir
Hringveginum við Jökulsárlón á Breiðamerkursandi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna malbikunarframkvæmda. Lokunin varir til klukkan 7 í fyrramálið....
Fullt af hálfvitum á vegunum
📅 27.09.2026 👁️ 2
Fullt af hálfvitum á vegunum
Gróa ólst upp á Suðurnesjum og var snemma mjög tónhneigð, lagði stund á tónlistarnám og var á fermingaraldri þegar farin að spila undir hjá kórum og f...
Óraníureglan gat ekki marserað vegna mótmæla kaþólikka
📅 27.09.2026 👁️ 2
Óraníureglan gat ekki marserað vegna mótmæla kaþólikka
Óraníureglan á Norður-Írlandi gat ekki haldið umdeilda skrúðgöngu sína í dag vegna mótmæla kaþólikka. Árleg gangan hefur ekki verið haldin í 30 ár veg...
Andy Burnham proposes NHS-style social care system for England
📅 27.09.2026 👁️ 2
Andy Burnham proposes NHS-style social care system for England
The prime minister told the BBC that social care in England is "as unfair as American healthcare".
Innlit í dómsdagsbyrgi fyrir ofurríkar fjölskyldur
📅 27.09.2026 👁️ 1
Innlit í dómsdagsbyrgi fyrir ofurríkar fjölskyldur
CNN fékk að skyggnast inn í dómsdagsbyrgi fyrir þá ofurríku.Þetta var áður neðanjarðarbyrgi fyrir eldflaugen hefur verið breytt í lúxusbyrgi fyrir mil...
„Bók­mennta­legir palla­dómar frá mér ekki mikils virði“ - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 1
„Bók­mennta­legir palla­dómar frá mér ekki mikils virði“ - Vísir
Svo það sé sagt hér strax í upphafi er þessi 600 síðna doðrantur einkar læsilegur sem er langt í frá sjálfgefið þegar um er að ræða yfirlitsrit á borð...
Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervi­greind? - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervi­greind? - Vísir
Það að ræða gervigreind í löngu máli þessa dagana er nánast eins og að ræða heimsfaraldur Covid-19 árið 2022, enda er mikið rætt og ritað um greindina...
Hættulega auðvelt að nálgast ólöglegt þyngdartapslyf á Íslandi – „Ég skal adda þér inn í grúbbu“
📅 27.09.2026 👁️ 2
Hættulega auðvelt að nálgast ólöglegt þyngdartapslyf á Íslandi – „Ég skal adda þér inn í grúbbu“
Undanfarið hefur peptíðlyfið Reta eða Retatrutide verið sérstaklega áberandi í umræðunni. Það er mjög auðvelt að finna söluaðila, verðlista og umsagni...
Efna­hags­málin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengi­sandi - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Efna­hags­málin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengi­sandi - Vísir
Gestalistann skipa þau Edda Björgvinsdóttir leikkona, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra, Þóra Björk Ingólfsdóttir, sálfræðingur og fagstjóri á V...
Burnham: 'Broken social care will in the end break the NHS'
📅 27.09.2026 👁️ 2
Burnham: 'Broken social care will in the end break the NHS'
Andy Burnham said the proposed care service would be laid out in detail and put on the ballot at the next general election.
Hátt í þrjá­tíu drepnir í tveimur skot­á­rásum - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Hátt í þrjá­tíu drepnir í tveimur skot­á­rásum - Vísir
Önnur skotárásin átti sér stað í Jóhannesarborg í gærkvöld þegar átta árásarmenn réðust inn á bar á svæðinu og hleyptu af skotum með þeim afleiðingum ...
Heimili rýmd nærri herflugstöð - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Heimili rýmd nærri herflugstöð - Vísir
Að sögn breska ríkisútvarpsins voru nokkrir handteknir snemma í morgun og er mikill viðbúnaður viðbragðsaðila á svæðinu. Sprengjusérfræðingateymi bres...
Hafna á­sökun um laga­stuld og líður eins og bekkjar­trúð á Ís­landi - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 1
Hafna á­sökun um laga­stuld og líður eins og bekkjar­trúð á Ís­landi - Vísir
Vísir settist niður með liðsmönnum sveitarinnar á þessum tímamótum, fór yfir ferilinn fram að þessu, hvernig það er að lifa á tónlist á tímum streymis...
Líður eins og bekkjar­trúð á Ís­landi - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 2
Líður eins og bekkjar­trúð á Ís­landi - Vísir
Vísir settist niður með liðsmönnum sveitarinnar á þessum tímamótum, fór yfir ferilinn fram að þessu, hvernig það er að lifa á tónlist á tímum streymis...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Sársvektu nei-sinnarnir
📅 27.09.2026 👁️ 4
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Sársvektu nei-sinnarnir
Einhver hefði kannski haldið að eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst myndu æstustu nei-sinnar halla sér makindalega aftur og leyfa sér að njóta líf...
Before BTS and Blackpink, there was Big Bang: Now the 'Kings of K-pop' are back
📅 27.09.2026 👁️ 3
Before BTS and Blackpink, there was Big Bang: Now the 'Kings of K-pop' are back
Big Bang played London's Tottenham Hotspur Stadium, marking a long-awaited return for the group that helped build the blueprint for modern K-pop.
Two mass shootings in South Africa leave 27 dead
📅 27.09.2026 👁️ 4
Two mass shootings in South Africa leave 27 dead
The two attacks hours apart come as the country struggles to stop high levels of gang-related armed violence.
Yfir þúsund hestamenn í Laufskálarétt
📅 27.09.2026 👁️ 4
Yfir þúsund hestamenn í Laufskálarétt
Meira en þúsund hestamenn komu saman í gær þegar réttað var í Laufskálarétt. Venju samkvæmt gerðu margir sér glaðan dag.„Það eru líklega fleiri hundru...
Svalt og rigning fyrir norðaustan
📅 27.09.2026 👁️ 4
Svalt og rigning fyrir norðaustan
Kyrrstæð lægð við norðausturströndina beinir svalri norðanátt innyfir norðvestanvert landið með talsverðri rigningu og jafnvelslyddu, einkum á Ströndu...
Express recovery trucks planned to cut motorway traffic jams
📅 27.09.2026 👁️ 2
Express recovery trucks planned to cut motorway traffic jams
Plans are moving forward with for a new fleet of express recovery trucks in Gran Canaria designed to clear accidents and breakdowns from the GC-1 more...
Ljósin slokkna á Kúbu
📅 27.09.2026 👁️ 4
Ljósin slokkna á Kúbu
Algjört rafmagnsleysi hefur plagað íbúa Kúbu reglulega undanfarin misseri. Neyðarástand hefur verið í orkumálum allt þetta ár vegna viðskiptaþvingana ...
27 drepnir og 26 særðust í tveimur aðskildum skotárásum
📅 27.09.2026 👁️ 3
27 drepnir og 26 særðust í tveimur aðskildum skotárásum
Að minnsta kosti 17 voru drepnir og fimmtán eru særðir eftir skotárás á bar vestur af Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gærkvöld.Lögregla segir að átta ...
Á­fram spáð tals­verðri úr­komu norðvestan­lands - Vísir
📅 27.09.2026 👁️ 3
Á­fram spáð tals­verðri úr­komu norðvestan­lands - Vísir
Kyrrstæð lægð við norðausturströnd landsins beinir svalri norðurátt yfir norðvesturhluta landsins, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Ísl...
Comté eða ekki Comté
📅 27.09.2026 👁️ 3
Comté eða ekki Comté
Comté eða ekki Comté Í Frakklandi gilda mjög ákveðn­ar regl­ur varð­andi fram­leiðslu osta, nán­ar til­tek­ið eru regl­urn­ar 170 tals­ins. Mjög stran...