Írönsk stjórnvöld standa föst á skilyrðum sínum fyrir því að opna Hormússund fyrir skipaflutningum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnaði skilyrðunum í gær, en þau höfðu glætt vonir um frið í stríðinu í Mið-Austurlöndum.
Sundið er fyrir löngu orðið að aðalbitbeini stríðsins, sem geisað hefur í sjö mánuði. Það er ein mikilvægasta lífæð alþjóðaviðskipta, ekki síst með olíu og gas úr þessum heimshluta.
Tillaga Írana kvað á um vopnahlé í öllum átökum í Mið-Austurlöndum, þar á meðal í Líbanon, að því er Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans segir. Þá var lagt til að vopnahléssamningur sem virtur var að vettugi fyrir nokkrum misserum yrði endurvakinn. Sá samningur kvað meðal annars á um að losa skyldi um frystar íranskar eignir og að viðskiptabann með íranska olíu yrði dregið til baka.
„Skilyrði okkar eru skýr,“ segir Aragchi við ríkismiðla í Íran. „Við höfum aldrei lokað á viðræður en á sama tíma gefum við aldrei réttindi okkar upp á bátinn,“ bætti hann við.
Trump sagði í gær að Íranir vildu semja af því þeir væru að tapa í stríðinu. Hann vildi því ekki taka tilboði þeirra.