Spænska leyniþjónustan, CNI, varaði við mögulegum fjöldaflótta fólks frá Marokkó til Ceuta degi áður en af honum varð. Þetta kemur fram í opinberum skjölum sem nýlega voru birt. Reuters greinir frá.
Að minnsta kosti 72 þúsund flúðu frá Marokkó til Ceuta 30. og 31. júlí. Flestir syntu kringum landamæragirðingu. Minnst 100 manns létu lífið.
CNI greindi yfirvöldum í Marokkó og Ceuta frá því 29. júlí að á samfélagsmiðlum væri fólk hvatt til að fara yfir landamærin daginn eftir. CNI sagði frá því að skilaboðin hefðu ratað til um það bil 180 þúsunda á Facebook og WhatsApp.
„Fyrir þau sem vilja fara yfir er síðasti möguleiki til þess á krúnudaginn klukkan 8. Yfirvöld hafa um annað að hugsa vegna hátíðarhalda og skrúðgangna,“ sagði í einum skilaboðanna. Krúnudagurinn 30. júlí er hátíðisdagur í Marokkó.
Þetta kemur fram auk annars í þeim rúmlega 40 skjölum sem voru gerð opinber í kjölfar mikillar gagnrýni á viðbrögðum Pedros Sánchez, forsætisráðherra Spánar.
Sánchez hefur haldið því statt og stöðugt fram að ekki hafi verið hægt að sjá atburðina í Ceuta fyrir. Hann sagði meðal annars sagt á þingi að ekkert hefði gefið til kynna umfang yfirvofandi hörmunga.
Ekki viðvörun, einungis upplýsingar
Miguel Ángel Pérez Triano, fulltrúi yfirvalda í Ceuta, sagði að skilaboðin frá CNI hefðu ekki falið í sér viðvörun eða tilkynningu, aðeins upplýsingar.
Stjórnarandstöðuflokkar segja ríkisstjórnina hafa afvegaleitt Spánverja.
„Þau voru með upplýsingarnar. Þau bera beina ábyrgð á innrásinni í Ceuta og á þeim sem létust,“ sagði Ester Muñoz, þingmaður íhaldsflokksins á Spáni.
Jorge Buxadé, þingmaður Vox, sem er yst á hægri væng spænskra stjórnmála, krafðist þess að Sánchez „og glæponahópur hans“ yrðu leiddir fyrir hæstarétt fyrir svik og öryggisglæpi.