Páll Vilhjálmsson skrifar:
Engu breytir hvort við köllum samninga við Evrópusambandið viðræður eða aðlögun, sagði i frétt á Vísi er byggði á viðtali við Vilborgu Ásu Guðjónsdóttur fyrrum verkefnastjóra Evrópuvefs HÍ. Vísir lætur líta svo út að smámál sé hvort spurningin í mögulegri þjóðaratkvæðagreiðslu verði um að ,,halda áfram viðræðum" eða að spurningin taki mið af þeirri staðreynd að eina leiðin inn í ESB er aðlögunarferli.
Aðlögun þýðir að umsóknarríki taki jafnt og þétt upp stofnanakerfi ESB, lög og reglugerðir, á meðan samningsferli stendur.
Björn Bjarnason fyrrverandi ráðherra gerði frétt Vísis að umtalsefni og skrifaði:
Það er undarlegt að Vilborg Ása kjósi að gera lítið úr athugasemdum landskjörstjórnar við orðalag spurningarinnar sjálfrar. Þar er ekki um aukaatriði að ræða heldur grundvallaratriði í lýðræðislegu ferli: að kjósendur viti með skýrum hætti um hvað þeir eru spurðir og á hvaða forsendum.
Eftir að Björn birti færslu á Facebook tók Vilborg Ása til máls í athugasemd og gaf til kynna að frétt Vísis, byggð á viðtali við hana sjálfa, endurspeglaði ekki afstöðu hennar til málsins. Athugasemd Vilborgar Ásu er svohljóðandi í heild:
Sæll Björn. Nú ræddum við Kristján Kristjánsson ekki athugasemdir landskjörstjórnar að neinu leyti í umræddu viðtali. Ég er raunar sammála athugasemdum landskjörstjórnar. Svo ég skil ekki gagnrýnina hér. (feitletr. pv)
Aðalathugasemd landskjörstjórnar er að spurningin sem á að leggja fyrir þjóðina, verði af atkvæðagreiðslu, er villandi. Vilborg Ása segist sammála landskjörstjórn. En Vísi tókst að gera frétt sem gengur í þveröfuga átt, byggði þó á ítarlegu viðtali við Vilborgu Ásu.
Vilborg Ása er alþjóðastjórnmálafræðingur, fengin í viðtal á stórum fjölmiðli sem sérfræðingur um Evrópumálefni. Á Vísi eru þaulvanir blaðamenn sem tekst samt sem áður, viljandi eða óviljandi, að skrifa frétt sem afflytur yfirlýsta afstöðu viðmælanda, sem er sérfróður um ESB-mál.
Almenningur mun ekki eiga sjö dagana sæla að mynda sér skoðun á grunni hlutlægra upplýsinga er sérfróðir (Vilborg Ása) í samtali við sérfræðinga á sviði upplýsingamiðlunar (blaðamenn) koma sér ekki saman um hvað sérfróður sagði og hver afstaða hans er i raun.
Upplýsingaóreiða er vægt orðalag yfir stöðu umræðunnar. Hver ber meginábyrgðina? Jú, vitanlega snillingurinn sem hratt úr vör þjóðaratkvæðagreiðslubastarðinum, lofaði lýðræðisveislu og sagðist treysta þjóðinni. Þjóðaratkvæði í þágu Viðreisnar er höfundarverk Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra. Veislan er óreiða áður en búið er að afla veislufanga; traustið ekki meira en svo að veisluspurningin er öllum óskiljanleg, jafnvel sérfræðingum.
Þjóðaratkvæði í þágu Viðreisnar er eitt allsherjar klúður. Upplýsingaóreiðan að undirlagi utanríkisráðherra mun vaxa stórum er málinu vindur fram og valda æ alvarlegri skaða á trausti þjóðarinnar til stjórnvalda. Í uppsiglingu er slíkt samfélagslegt gengisfall að annað eins hefur ekki sést síðan hrunið var og hét. Veisluborðið er hlaðið blekkingum, óreiðu, undirferli og svikráðum brugguðum í Brussel.