Verzlunarskóli Íslands er áfram vinsælasti framhaldsskólinn meðal útskriftarnema 10. bekkjar grunnskóla líkt og síðustu ár en vinsældirnar dala þó um 12% milli ára. Verzló var fyrsta val hjá samtals 545 nemendum í ár en í fyrra setti 621 nemandi skólann í fyrsta sæti.
Næstvinsælastur er Tækniskólinn og þá Kvennaskólinn í Reykjavík. Vinsældir þess síðarnefnda aukast nokkuð milli ára en um 17% fleiri settu Kvennó í fyrsta sæti í ár miðað við í fyrra.
Fjöldi þeirra sem settu Fjölbrautaskólann í Garðabæ í fyrsta sæti jókst um 24% á milli ára en aukningin er 22,5% fyrir Menntaskólann í Reykjavík. Aukningin var minni fyrir Menntaskólann í Hamrahlíð eða 11%.
Vinsældir Menntaskólans í Kópavogi dvínuðu um 36% og 19% færri settu Menntaskólann við Sund í fyrsta sæti í ár miðað við í fyrra.
Í fréttatilkynningu frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu segir að alls hafi 5.152 nemendur fengið úthlutaða skólavist á næsta skólaári. Um 79% fengu pláss í skólanum sem þeir settu í fyrsta sæti. Alls var hægt að sækja um þrjá skóla.
Sé litið til innritunar komust flestir nýnemar inn í Tækniskólann, eða 477. Næstflestir, eða 386, komust inn í Verzló og 313 nemendur í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Í tilkynningu MMS kemur fram að allir nýnemar sem uppfylltu inntökuskilyrði hafi fengið skólavist á næsta skólaári. Um 97% fengu skólavist í einum af þeim þremur skólum sem þeir völdu í umsókn sinni.