Danskur sæðisgjafi sem síðar greindist með alvarlega genastökkbreytingu sem veldur krabbameini feðraði að minnsta kosti 210 börn í fjórtán ríkjum, fleiri en áður var talið. Fjallað var um málið í Kastljósi í desember. Þar kom fram að fjögur af börnunum eru íslensk.
Sæðisgjafinn var númer 7069 og yfirleitt kallaður Kjeld. Danski sæðisbankinn European Sperm Bank seldi sæði hans víða um Evrópu frá og með árinu 2005. Hvorki hann né bankinn vissu af genastökkbreytingunni á þeim tíma.
Vill að hálfsystkin verði látin vita
Julie Jepsen er nítján ára og var getin með gjafasæði Kjelds. Hún hefur lifað af krabbamein tvisvar, fyrst þegar hún var fjögurra ára. Tilviljun hafi ráðið því að hún fór þá í genarannsókn þar sem stökkbreytingin fannst og krabbamein í heila í framhaldinu. Hún er laus við krabbamein í dag og vill að hálfsystkini hennar, sem eru um það bil 210, verði tekin til rannsókna og kannað hvort þau beri stökkbreytinguna. „Þetta er spurning um líf og dauða að fara í segulómmyndun til þess að fá að vita fyrir víst,“ segir hún.
Sérfræðingar segja þetta stærsta þekkta tilfelli sem upp hafi komið þar sem alvarlegir sjúkdómar berast með gjafasæði. Danska ríkisútvarpið segir enn óljóst hversu mörg börn hafi fundist og vöruð við mögulegri hættu á krabbameini.