Enska knattspyrnufélagið West Ham vill fá yfir 80 milljónir punda fyrir portúgalska miðjumanninn Mateus Fernandes í sumar.
Hinn áreiðanlegi Ben Jacobs segir frá en West Ham greiddi Southampton í kringum 40 milljónir punda fyrir leikmanninn síðasta sumar.
Samkvæmt Jacobs vill félagið nú fá að minnsta kosti tvöfalt þá upphæð fyrir leikmanninn, þrátt fyrir að West Ham hafi fallið úr ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Bæði Arsenal FC og Manchester United FC hafa sýnt Fernandes áhuga, en félögin eru sögð vonast til að geta samið um lægra kaupverð.