TMZ greinir frá þessu. Aðstandendur Ray segja hana hafa fallið frá í gær. Hún hafi verið í faðmi fjölskyldu. Dánarorsök liggur ekki fyrir.
Ray varð fræg fyrirsæta og öðlaðist miklar vinsældir á samfélagsmiðlum. Hún átti einnig sundfatalínuna Sahara Ray Swim.
Árið 2024 opnaði hún sig um baráttu sína við Guillain-Barré heilkennið en það er sjaldgæfur taugasjúkdómur sem hún hlaut eftir alvarlegt bílslys sem olli því að hún lamaðist að hluta.
Hún rataði í fréttir árið 2016 þegar hún náðist á mynd með Justin Bieber í fríi á Havaí. Hún var áður í sambandi með ásströlsku poppstjörnunni Cody Simons. Ray var dóttir brimbrettakempunnar Tony Ray og varði miklum hluta æsku sinnar á flakki milli Ástralíu, Kaliforníu og Havaí, að því er TMZ greinir frá.