Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Yfirvöld í Danmörku hefja rannsókn eftir að fréttaljósmyndarar lýsa árásum af hálfu lögreglunnar. Ljósmyndarnir voru að mynda mótmæli nú um helgina þegar þeir segja að lögreglan hafi ráðist á sig.
Lögreglan í Kaupmannahöfn greindi frá því í dag að rannsókn sé hafin vegna ásakana tveggja fréttaljósmyndara sem segjast hafa orðið fyrir árásum lögreglumanna við störf sín á mótmælum gegn innflytjendum nú um helgina.
Ljósmyndari danska dagblaðsins Ekstra Bladet segir lögreglumann hafa slegið sig með kylfu þegar hann fylgdist með mótmælum í dönsku höfuðborginni. Mótmælendur kröfðust þess að innflytjendur yrðu sendir aftur til upprunalanda sinna, en jafnframt fóru fram gagnmótmæli.
Ljósmyndari dagblaðsins Politiken sakar lögregluna einnig um að hafa slegið sig með kylfu. Myndavél hans eyðilagðist í átökunum og flytja þurfti hann á sjúkrahús.
„Fjölmiðlar hafa greint frá tveimur tilteknum atvikum þar sem lögreglumenn eru sagðir hafa slegið fjölmiðlafólk,“ segir í yfirlýsingu lögreglunnar.
„Í ljósi þeirrar gagnrýni sem fram hefur komið í kjölfarið höfum við óskað eftir því að óháð eftirlitsstofnun með störfum lögreglu, DUP, rannsaki málin.“
Í leiðara sem birtist á sunnudag sagði …