Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að engar viðvaranir hafi borist frá bandamönnum um eldflauga- og drónaárásir sem Rússar gerðu í nótt. Þeir hafi skotið 16 eldflaugum og yfir 200 drónum í nokkrum bylgjum.
Rússar segjast hafa gert viðamiklar árásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt, meðal annars á hernaðarinnviði, vopnageymslur fyrir flugskeyti og dróna og gagnaver. Kyiv Independent segir að einn hafi verið drepinn og átta særðir í árásum í gær.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem er í Samarkand í Úsbekistan, neitaði því í morgun að dregið hefði verið úr upplýsingagjöf Bandaríkjamanna til Úkraínu um loftárásir síðustu þrjá daga. Spurður hvort svo hefði verið í gær sagðist hann ekki vita það en hugbúnaðarvandamál fyrir nokkrum dögum hefði haft áhrif á viðvaranir.
The Guardian segir að bandarískir embættismenn hafi ekki áður nefnt hugbúnaðarvandamál sem ástæðu þess að engar viðvaranir hafi borist Úkraínuher.
Andað hefur köldu milli Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og Úkraínuforseta undanfarna daga. Trump segir að Zelensky standi í vegi fyrir að hægt sé að binda enda á stríðið. Zelensky hafnar því alfarið og segir að ekki standi á Úkraínumönnum að ræða frið en Rússar komi í veg fyrir það.
Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur óskað eftir fundi með Xi Jinping forseta Kína og Bandaríkjaforseta til að ræða hvernig binda megi enda á stríðið. Ekki virðist vera gert ráð fyrir aðkomu úkraínskra stjórnvalda að þeim fundi.