Jón heitir í samningnum stuðningi við fjárlög, fjáraukalög og stefnumótandi frumvörp ríkisstjórnarinnar sem byggjast á stjórnarsáttmálanum. Þar gæti meðal annars verið átt við frumvörp um kosningalög, auðlindagjöld, orkumál og húsnæðismál.
Samningurinn er dagsettur 15. október og undirritaður af Jóni og Pawel Bartoszek, formanni þingflokks Viðreisnar. Sama dag var tilkynnt um úrsögn Jóns úr þingflokknum.
Framlagið fylgir Jóni
Framlög til þingflokks Viðreisnar lækka um eina framlagseiningu við úrsögn Jóns, eða 1.329.630 krónur á ári. Sú fjárhæð rennur þess í stað til þingstarfa hans sem þingmanns utan þingflokka.
Sama fyrirkomulag gildir um framlagið sem færðist frá þingflokki Flokks fólksins við úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar fyrr á þessu ári.
Starfsheimild Viðreisnar hefur hins vegar ekki minnkað. Úrsögn Jóns leiðir því ekki til þess að þingflokkurinn þurfi að fækka starfsfólki á kostnað Alþingis.
Þegar Guðmundur Ingi hætti í Flokki fólksins þurfti þingflokkurinn aftur á móti að fækka starfsfólki um einn. Framsókn fékk þess í stað heimild til að bæta við starfsmanni, eins og Heimildin greindi frá í apríl.
Alls eru 25 stöðugildi til úthlutunar milli þingflokka. Hver þingflokkur fær að lágmarki einn starfsmann. Störfunum sem eftir standa er skipt með D’Hondt-reglunni eftir stærð þingflokka, að frádregnum þeim þingmönnum sem hafa eigin aðstoðarmenn samkvæmt öðrum reglum. Þar er um að ræða ráðherra og formenn flokka í stjórnarandstöðu.
Úrsögn Jóns breytti ekki niðurstöðu þeirrar úthlutunar.
Stuðningur við stór stefnumál
Í fyrsta kafla samningsins lýsir Jón yfir stuðningi við framgang stjórnarmála og megináherslur þeirra á kjörtímabilinu. Þar segir jafnframt:
„Hann mun taka þátt í atkvæðagreiðslum þar sem hann mun styðja fjárlög, fjáraukalög og stefnumótandi frumvörp stjórnarinnar sem fram koma í stjórnarsáttmála.“
Undir stuðningsyfirlýsinguna gæti meðal annars fallið frumvarp ríkisstjórnarinnar um leigubremsu, sem er nú til meðferðar í velferðarnefnd Alþingis. Í greinargerð þess er sérstaklega vísað til áherslna stjórnarsáttmálans um húsnæðisöryggi og sterkari stöðu leigjenda.
Þá gæti ákvæðið náð til fyrirhugaðra breytinga á kosningalögum til að jafna atkvæðavægi og þingsætadreifingu. Starfshópur hefur skilað tillögum og frumvarpsdrögum til Alþingis, meðal annars um að fjölga jöfnunarsætum úr níu í 27. Þær breytingar hafa ekki verið samþykktar.
Heldur aðstoð og nefndarsætum
Viðreisn mun samkvæmt samningnum veita Jóni aðgang að sérfræðiaðstoð og annarri stoðþjónustu eftir nánara samkomulagi.
Jón heldur jafnframt sæti sínu í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, þar sem samningurinn kveður á um að hann sitji sem almennur nefndarmaður. Hann á áfram sæti í Þingvallanefnd og gegnir áfram formennsku í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.
Þingflokkur Viðreisnar getur kallað inn varamann í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í fjarveru Jóns. Þá getur þingflokkurinn kallað inn varaþingmann í lögbundnum fjarverum hans frá þingstörfum, í samræmi við reglur Alþingis.
Samningurinn tók gildi við undirritun og gildir til loka kjörtímabilsins. Hvor aðili getur sagt honum upp með skriflegri tilkynningu.