Nýja Garmin Fenix 9 sam­einar allt það besta í einu úri - Vísir

Nýja Garmin Fenix 9 sam­einar allt það besta í einu úri - Vísir

Nýja Garmin Fenix 9 sam­einar allt það besta í einu úri - Vísir

Steinar Magnússon, sölumaður hjá Garmin búðinni, segir nýju línuna sérstaklega spennandi fyrir þá sem vilja sameina alla helstu möguleika Garmin í einu tæki. „Garmin kynnti nýju úrin fyrir um mánuði síðan og þau hafa verið að berast til okkar í nokkrum sendingum. Nú erum við komin með allar gerðirnar og viðtökurnar hafa verið mjög góðar,“ segir Steinar, sem sér einnig um samfélagsmiðla Garmin hér á landi.

Steinar Magnússon er sölumaður hjá Garmin búðinni og sér einnig um samfélagsmiðla Garmin hér á landi.

Hann segir Fenix-línuna lengi hafa verið flaggskip Garmin og að nýjasta kynslóðin sé engin undantekning. Þar fari saman öflug tækni, vönduð hönnun og eiginleikar sem nýtist jafnt í daglegu lífi sem við krefjandi aðstæður.

Þrisvar sinnum bjartari skjár

Ein stærsta nýjungin í Fenix 9 er skjárinn, sem hefur tekið verulegum framförum frá fyrri kynslóðum.

„Ef við berum Fenix 9 Pro saman við Fenix 8 er skjárinn um það bil þrisvar sinnum bjartari. Hámarksbirtan er nú 3.000 nit, sem er gríðarleg framför. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli þegar fólk er úti í sterkri sól og þarf að geta lesið auðveldlega af úrinu,“ útskýrir Steinar.

Skjárinn hefur jafnframt stækkað í stærstu útgáfunni. Úrin fást í þremur stærðum, 43, 47 og 51 millimetra, og í þeirri stærstu er skjárinn orðinn 1,5 tommur. „Það sem er sérstaklega merkilegt er að þrátt fyrir stærri og bjartari skjá heldur stærsta útgáfan um 30 daga rafhlöðuendingu. Það er mjög góður árangur.“

Vinnsluhraðinn hefur einnig aukist verulega, ekki síst þegar kemur að landakortum og leiðsögn.

„Garmin hefur lengi framleitt sérhæfð handtæki fyrir göngu- og útivistarfólk. Nú er Fenix í raun komið með sama gagnagrunn og þessi tæki og vinnslan er jafnvel hraðvirkari. Skjárinn er auðvitað minni en tæknin er orðin ótrúlega öflug.“

Tvær útfærslur fyrir mismunandi þarfir

Nýja línan skiptist í Fenix 9 og Fenix 9 Pro. Að sögn Steinars er virkni úranna að mestu leyti sambærileg en nokkur atriði skilja þau að.

„Í Pro-útgáfunni er skjárinn bjartari, eða 3.000 nit á móti 2.000 nit í venjulegu útgáfunni. Þá hefur úrkassinn í Pro-línunni verið endurhannaður og er nú allur úr títaníum. Það gerir úrið sterkara og gefur því fágaðra yfirbragð án þess að þyngdin aukist mikið.“

Í þessu úri hefur Garmin í raun sameinað allt það besta sem fyrirtækið býður upp á.

Í Pro-línunni er einnig hægt að velja útfærslu með LTE- eða inReach-tækni, sem gerir notendum kleift að senda skilaboð og staðsetningarupplýsingar án þess að hafa farsímann meðferðis. Sú þjónusta er þó háð áskrift og hefur ákveðnar takmarkanir hér á landi. „Við leggjum því ekki sérstaka áherslu á þessa útfærslu nema fólk hafi ákveðna þörf fyrir hana. Flestir velja venjulegt Fenix 9 eða Pro-útgáfuna án þessarar viðbótar.“

Heilsuúr, hlaupaúr og golfúr í einu

Það sem gerir Fenix-línuna sérstaka er hversu marga eiginleika Garmin hefur sameinað í einu úri. Þar má finna yfir 100 íþróttastillingar ásamt ítarlegum heilsumælingum, leiðsögukerfum og hefðbundnum snjallúrseiginleikum.

„Í þessu úri hefur Garmin í raun sameinað allt það besta sem fyrirtækið býður upp á. Þú ert með mjög öflugt heilsuúr sem mælir meðal annars púls, svefn og skrefafjölda og veitir ýmsar upplýsingar um líkamlegt ástand. Síðan er þetta líka eitt öflugasta hlaupaúr sem við bjóðum,“ segir Steinar.

Fyrir hlaupara býður Fenix 9 upp á mun ítarlegri upplýsingar en hefðbundnar mælingar á hraða, vegalengd og púlsi. Úrið getur meðal annars metið hlaupastíl, skilvirkni og álag sem fylgir mismunandi æfingum.

„Segjum að þú hlaupir tíu kílómetra á erfiðri leið með mikilli hækkun eða grófu undirlagi. Þá getur úrið metið álagið þannig að þessir tíu kílómetrar jafngildi kannski tólf kílómetrum á auðveldari leið. Þú færð því mun betri mynd af því hversu mikið æfingin reynir á líkamann.“

Útivistarfólk getur nýtt ítarleg landakort, hlaðið inn gönguleiðum og fengið leiðsögn. Úrið skráir einnig skíðaferðir og inniheldur kort af skíðaleiðum á um 2.000 skíðasvæðum víða um heim, þar sem sjá má hvernig leiðirnar liggja og hversu erfiðar þær eru. Golfáhugafólk fær sömuleiðis ýmislegt fyrir sinn snúð. „Í úrinu eru upplýsingar um 43 þúsund golfvelli, kort af brautunum og sýndarkylfusveinn sem getur aðstoðað kylfinga við að skipuleggja leikinn. Svo geturðu auðvitað borgað með úrinu, fengið tilkynningar úr símanum og nýtt alla helstu snjalleiginleikana.“

Ekki bara fyrir afreksíþróttafólk

Þótt Fenix 9 sé hannað með þarfir kröfuharðra notenda í huga segir Steinar kaupendahópinn mun fjölbreyttari en margir geri sér grein fyrir.

„Þetta eru auðvitað ekki ódýr úr. Verðið byrjar í kringum 175 þúsund krónur og við mælum ekki endilega með því að fólk sem er að stíga sín fyrstu skref í Garmin-kerfinu byrji á Fenix. En fyrir þá sem vilja það besta er þetta það öflugasta sem við getum boðið.“

Þegar kemur að því að sameina öfluga íþrótta- og útivistareiginleika við snjallúr er fátt sem kemst nálægt Garmin.

Hann segir kaupendahópinn spanna allt frá reynslumiklu íþróttafólki og útivistaráhugamönnum til fólks sem einfaldlega vill vandað og glæsilegt úr. „Sumir nýta alla möguleikana í æfingum og útivist en aðrir vilja fyrst og fremst mæla púlsinn og telja skrefin. Þeir síðarnefndu velja samt Fenix vegna þess að þeim finnst það flottast og vilja eiga það besta. Úrið er líka með öflugt vasaljós sem kemur oft að góðum notum, t.d. þegar þarf að læðast í sokkaskúffuna á meðan makinn sefur.“

Garmin í sérstöðu á markaðnum

Steinar telur helsta styrkleika Garmin felast í sérhæfingu fyrirtækisins í íþróttum, heilsu og útivist.

„Ég er auðvitað svolítið hlutdrægur, en að okkar mati eru Garmin-úrin í ákveðinni sérstöðu. Það eru vissulega til snjallúr sem eru öflugri þegar kemur að tölvuvinnslu og bjóða upp á fleiri hefðbundna snjalleiginleika. En þegar kemur að því að sameina öfluga íþrótta- og útivistareiginleika við snjallúr er fátt sem kemst nálægt Garmin.“

Vinsældir Garmin hér á landi hafa jafnframt farið vaxandi og segir Steinar sífellt fleiri bætast í hóp notenda. „Við sjáum að salan virðist aukast á hverju ári. Það er líka mjög virkt samfélag í kringum Garmin á Íslandi og fólk er duglegt að deila upplýsingum um æfingar og hreyfingu. Þegar maður fer á hlaup eða aðra íþróttaviðburði er mjög áberandi hversu margir eru með Garmin-úr.“

Hann segir þróunina skemmtilega, ekki síst vegna þess að markaðurinn virðist stöðugt halda áfram að stækka. „Maður hefði kannski haldið að flestir sem vildu Garmin-úr væru þegar komnir með eitt. En það virðist alltaf vera að bætast við nýtt fólk. Það segir okkur að áhuginn á heilsu, hreyfingu og þessari tækni er sannarlega til staðar.“

#allt #fenix #garmin #nýja #sameinar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262950420d/nyja-garmin-fenix-9-sam-einar-allt-thad-besta-i-einu-uri

📰 Aðrar fréttir

Ísraelskt flugfélag hyggst fljúga beint til Íslands – „Þetta gæti varðað þjóðaröryggi“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Ísraelskt flugfélag hyggst fljúga beint til Íslands – „Þetta gæti varðað þjóðaröryggi“
Ísraelska flugfélagið Arkia hyggst hefja beint áætlunarflug til Íslands næsta sumar. Fjölmiðlafræðingur varar við og spyr hvort að íslensk yfirvöld ha...
Skiptar skoðanir um fyrirhugaða uppbyggingu í Spönginni - „Þéttingin komin aftur á kreik?“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Skiptar skoðanir um fyrirhugaða uppbyggingu í Spönginni - „Þéttingin komin aftur á kreik?“
Fullyrt er í Morgunblaðinu í dag að vel hafi verið tekið í hugmyndir fasteignafélagsins Reita um uppbyggingu í Spönginni í Grafarvogi. Til stendur að ...
Stefán bendir á skuggalega staðreynd um sparifé ríka fólksins - „Svona er byrðum verðbólgunnar misskipt“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Stefán bendir á skuggalega staðreynd um sparifé ríka fólksins - „Svona er byrðum verðbólgunnar misskipt“
Stefán Ólafsson hagfræðingur bendir á svakalega staðreynd um sparifé efnafólks á Íslandi. Auðæfi þeirra hafa aukist um 30 prósent á stuttum tíma.„Spar...
Bubbi og Pálmi í hár saman: „Þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig“ – „Ekki vera fáviti“
📅 19.10.2026 👁️ 0
Bubbi og Pálmi í hár saman: „Þú hossar engum nema það sé eitthvað í því fyrir þig“ – „Ekki vera fáviti“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens vill að ríkið taki landið af auðkýfingnum Jim Ratcliffe á Norðausturlandi, segir Bubbi að verndun íslenska laxastofns...
Diljá Mist orðin einhleyp
📅 19.10.2026 👁️ 3
Diljá Mist orðin einhleyp
Þingkonan Diljá Mist Einarsdóttir og fjármálastjórinn Róbert Benedikt Róbertsson eru farin hvort í sína áttina. Þetta staðfestir Diljá í samtali við m...
Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ - Vísir
Í hádegisfréttum Bylgjunnar mátti heyra hóp lögreglumanna beita táragasi gegn mótmælendum í París en þar hélt óeirðaralda áfram í gærkvöld og í nótt. ...
Skoða að út­vista rekstri Hús­dýragarðsins til einka­aðila - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Skoða að út­vista rekstri Hús­dýragarðsins til einka­aðila - Vísir
Á morgun tekur borgarstjórn Reykjavíkur fyrir tillögu borgarfulltrúa meirihlutans um að athuga útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Bein...
Woman says she 'closed eyes and tried not to be there' during alleged Russell Brand rape
📅 19.10.2026 👁️ 2
Woman says she 'closed eyes and tried not to be there' during alleged Russell Brand rape
The 51-year-old faces three counts of rape, three charges of sexual assault and one of indecent assault.
Lærðum við ekkert af Icesave?
📅 19.10.2026 👁️ 3
Lærðum við ekkert af Icesave?
ESA hefur höfðað mál gegn Íslandi vegna innleiðingar bókunar 35. Utanríkisráðherra mælir á sama tíma fyrir frumvarpi um lagabreytingu og telur rétt að...
Undir­skriftasöfnun hafin og ríkis­sakóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Undir­skriftasöfnun hafin og ríkis­sakóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar dómsins sem þykir umdeildur. Íslenskur kennari í París se...
Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe - Vísir
Herdís Kjerulf Þorgeirsdóttir, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, skrifaði á laugardaginn ítarlega Facebook-færslu um ítök Ratcliffe sem vak...
Veita sveitarfélögum upplýsingar um niðurstöður PISA eftir allt saman
📅 19.10.2026 👁️ 2
Veita sveitarfélögum upplýsingar um niðurstöður PISA eftir allt saman
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur tekið ákvörðun um að upplýsa þau sveitarfélög og grunnskóla sem eftir því leita um sínar niðurstöður í PISA 2025....
Prestur lést þegar róðu­kross féll á hann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Prestur lést þegar róðu­kross féll á hann - Vísir
Það sýnir prestinn í miðri messu þegar stór krossinn fyrir aftan hann losnar af veggnum og fellur á hann. Þá stóð Malinari við altari kirkjunnar og sn...
Felldu 1,4 milljarða sekt úr gildi og vísuðu til nýrrar meðferðar
📅 19.10.2026 👁️ 2
Felldu 1,4 milljarða sekt úr gildi og vísuðu til nýrrar meðferðar
Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á sölu Landsvirkjunar vegna orkutapa Landsnets var gölluð því markaðir höfðu ekki verið skilgreindir sem skyldi. Þess ...
Maður hnoðaður til lífs í Sund­höllinni - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Maður hnoðaður til lífs í Sund­höllinni - Vísir
Þeim sem voru í Sundhöllinni í gær um klukkan 17 var illa brugðið en þá kom upp atvik. Karlmaður nokkur fékk aðsvif og var hann umsvifalaust færður af...
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætó geta átt yfir höfði sér sekt
📅 19.10.2026 👁️ 2
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætó geta átt yfir höfði sér sekt
Farþegar sem spila háværa tónlist í strætisvögnum á Englandi gætu átt á hættu á að vera sektaðir. Stjórnvöld ætla að taka harðar á óæskilegri og trufl...
Ríkissaksóknari íhugar áfrýjun í nauðgunarmáli
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ríkissaksóknari íhugar áfrýjun í nauðgunarmáli
Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja dómi Landsréttar frá í síðustu viku þar sem karlmaður á fertugsaldri var sýknaður af nauðgun, samkvæmt svari við fyri...
Ísraelskt flug­fé­lag boðar beint flug til Ís­lands - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ísraelskt flug­fé­lag boðar beint flug til Ís­lands - Vísir
Félagið kynnti í gær flugáætlun sína fyrir árið 2027, sem nær til fjörutíu áfangastaða erlendis. Ísland er einn fimm nýrra áfangastaða, ásamt Maníla á...
Fjölmenni fagnaði með ráðgátumeistaranum
📅 19.10.2026 👁️ 2
Fjölmenni fagnaði með ráðgátumeistaranum
Tímamót eru á ferli Ragnars Jónassonar rithöfundar með útgáfu nýjustu spennusögu hans, Svartakóf, því þetta er 20. útgefna bók hans.Útgáfunni var fagn...
Apu fær aftur rödd – Nú með aðstoð Grey’s Anatomy leikara
📅 19.10.2026 👁️ 2
Apu fær aftur rödd – Nú með aðstoð Grey’s Anatomy leikara
Indverski kaupmaðurinn Apu Nahasapeemapetilon sneri aftur til Springfield í nýjasta þættinum um Simpson-fjölskylduna sem var frumsýndur í Bandaríkjunu...
Diljá Mist og Róbert Benedikt skilin
📅 19.10.2026 👁️ 2
Diljá Mist og Róbert Benedikt skilin
Þingkonan Diljá Mist Einarsdóttir og fjármálastjórinn Róbert Benedikt Róbertsson eru farin hvort í sína áttina. Þetta staðfestir Diljá í samtali við m...
Hjálpum þeim heim – Evrópa er á heljarþröm
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hjálpum þeim heim – Evrópa er á heljarþröm
Ég er eflaust langt frá því að vera sá eini sem er orðinn dauðþreyttur á að heyra íslenska blaðamenn endurtaka lygina um að óeirðirnar í Frakklandi sn...
Vill að nauðgun af gáleysi verði refsiverð eftir umdeildan sýknudóm
📅 19.10.2026 👁️ 2
Vill að nauðgun af gáleysi verði refsiverð eftir umdeildan sýknudóm
Alþingi ætti að skoða hvort það þurfi að búa til ákvæði um nauðgun af gáleysi að mati Sigrúnar Sifjar Eyfeld Jóelsdóttur.
Hætta við umdeild áform á Völlunum
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hætta við umdeild áform á Völlunum
Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að hætta við uppbyggingu 130 einingahúsa á Völlunum. Samið hafði verið við Styrkás fasteignir um uppbygginguna sem átti...
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing bir...
Dóms­mála­ráð­herra fær nýjan að­stoðar­mann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Dóms­mála­ráð­herra fær nýjan að­stoðar­mann - Vísir
Fyrir á fleti er Þórdís Valsdóttir aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Ásta Sóllilja er sögð munu starfa með Þórdísi í tilkynningu frá stjórnarráðinu um r...
Stal senunni í sex milljarða króna brjósta­haldara - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Stal senunni í sex milljarða króna brjósta­haldara - Vísir
Fyrsta tískusýning Victoria's Secret fór fram árið 1995 og hefur ár hvert vaxið í vinsældum. Heimsfrægar fyrirsætur ganga tískupallinn fáklæddar í nær...
Ásta Sóllilja aðstoðar dómsmálaráðherra
📅 19.10.2026 👁️ 2
Ásta Sóllilja aðstoðar dómsmálaráðherra
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ráðið Ástu Sóllilju Sigurbjörnsdóttur í starf aðstoðarmanns síns. Hún aðstoðar Þorbjörgu ásamt Þórd...
Israeli police arrest 10 over settler attacks on journalist and diplomats in West Bank
📅 19.10.2026 👁️ 2
Israeli police arrest 10 over settler attacks on journalist and diplomats in West Bank
It comes after masked settlers attacked Palestinians and European officials visiting the West Bank during olive harvesting season.
Cambridgeshire train attacker Anthony Williams admits wounding
📅 19.10.2026 👁️ 3
Cambridgeshire train attacker Anthony Williams admits wounding
Anthony Williams is in court after multiple stabbings on a train that was forced to stop in Huntingdon.
Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
📅 19.10.2026 👁️ 3
Diljá Mist staðfestir sambandsslitin
Diljá Mist staðfestir sambandsslitin Diljá Mist Einarsdóttir Mynd: Víkingur Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Róbert Benedik...
Reform MSP Amanda Bland resigns to sit as independent
📅 19.10.2026 👁️ 2
Reform MSP Amanda Bland resigns to sit as independent
Amanda Bland's decision relegates the party to the third-largest group at Holyrood, with one member fewer than Labour.
Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir
Pálmi óð í Bubba eftir þungar aðdróttanir Tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Pálmi Gunnarsson Mynd: Samsett Tónlistarmennirnir Bubbi Morthens og Pál...
Hætt við tímabundið hverfi fyrir farandverkamenn
📅 19.10.2026 👁️ 2
Hætt við tímabundið hverfi fyrir farandverkamenn
Ekkert verður af því að komið verði upp húsnæði fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Hugmyndin var að þar gæti farandverkaf...
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum
„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum Lula Bras­il­íu­for­seti og Flavio Bol­son­aro, mót­fram­bjóð­andi hans, áttu í har...
Diljá Mist á lausu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Diljá Mist á lausu - Vísir
Mbl.is greindi fyrst frá. Diljá er sjöundi þingmaður Reykjavíkur norður og skipaði annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosningunum 2024...
Diljá Mist skilin - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Diljá Mist skilin - Vísir
Mbl.is greindi fyrst frá. Diljá er sjöundi þingmaður Reykjavíkur norður og skipaði annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Alþingiskosningunum 2024...
Í­búarnir höfðu betur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Í­búarnir höfðu betur - Vísir
Í tilkynningu frá bænum segir að ákvörðunin hafi verið tekin að undangenginni yfirferð á forsendum verkefnisins, meðal annars með hliðsjón af sjónarmi...
England women's manager Sarina Wiegman signs two-year contract extension
📅 19.10.2026 👁️ 3
England women's manager Sarina Wiegman signs two-year contract extension
Sarina Wiegman says she "cannot think of a better job in football" as she commits to staying on as manager of the Lionesses until after Euro 2029.
Vikan á Instagram: „Og þess vegna er ég að lifa mínu drauma lífi“
📅 19.10.2026 👁️ 3
Vikan á Instagram: „Og þess vegna er ég að lifa mínu drauma lífi“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Inga opnar fyrir niður­stöður í PISA - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Inga opnar fyrir niður­stöður í PISA - Vísir
„Þau sveitarfélög sem þegar hafa óskað eftir sínum niðurstöðum munu fá þær afhentar að lokinni frekari gagnagreiningu ráðuneytisins úr hrágögnum OECD,...
Samþykkja ekki óbreytt ástand í botni Eyjafjarðar - Skólp hafi sett mark sitt á lífríkið
📅 19.10.2026 👁️ 3
Samþykkja ekki óbreytt ástand í botni Eyjafjarðar - Skólp hafi sett mark sitt á lífríkið
Umhverfis- og orkustofnun hefur hafnað beiðni Norðurorku fyrir hönd Akureyrarbæjar um að botn Eyjafjarðar verði áfram skilgreindur sem síður viðkvæmt ...
Four arrested after police officer injured in Nottingham shooting
📅 19.10.2026 👁️ 3
Four arrested after police officer injured in Nottingham shooting
The officer was shot in the foot and remains in hospital in a stable condition, police say.
Eva Björg verð­launuð í Frakk­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Eva Björg verð­launuð í Frakk­landi - Vísir
Prix Polar de Cognac-hátíðin hefur verið haldin í Cognac síðan 1996, er tileinkuð glæpasögum og spennutryllum og eru þar veitt verðlaun í fimm flokkum...
Ísafjarðarbær leggst gegn sameiningu lögregluembætta
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ísafjarðarbær leggst gegn sameiningu lögregluembætta
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Vestfjörðum verði lagt niður í fyrirhuguðum breytingum á skipulagi lögreglu.Í u...
Icelandair búið að kaupa hlutinn í Fly Play Europe
📅 19.10.2026 👁️ 3
Icelandair búið að kaupa hlutinn í Fly Play Europe
Kaup Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe eru fullfrágengin. Fyrirtækið tilkynnti Kauphöllinni í dag að öll skilyrði fyrir kaupunum hefðu verið upp...
Senda far til að kanna upp­runa Fó­bosar - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Senda far til að kanna upp­runa Fó­bosar - Vísir
Ólíkar tilgátur eru uppi um hvaðan Fóbos og og Deimos, minna tunglið, komu. Sumir vísindamenn telja tunglin leifarnar af braki eftir að stórt fyrirbær...
Áfram lítill hagvöxtur en minnkandi verðbólga
📅 19.10.2026 👁️ 3
Áfram lítill hagvöxtur en minnkandi verðbólga
Áfram verður hægagangur í efnahagslífinu næstu misseri, samkvæmt hagspá Landsbankans. Þó eru líkur til að verðbólga fari fljótt að minnka og að stýriv...
Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi - Vísir
„Ferlið að greiningu hafði verið mjög þungt og erfitt,“ segir Rósa Björg Karlsdóttir, sem greindist haustið 2009 með langt gengið krabbamein. „Ég viss...
Ók viljandi á ástralska þingkonu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ók viljandi á ástralska þingkonu - Vísir
Haines, sem er 65 ára gömul, er sögð alvarlega slösuð en maðurinn sem ók bílnum var yfirbugaður á vettvangi af almennum borgurum og svo handtekinn. Lö...