Helen Haines, áströlsk þingkona, slasaðist alvarlega þegar jeppi keyrði á hana fyrir utan skrifstofu hennar í Viktoríu-fylki í dag. Forsætisráðherra landsins segir árásina viljaverk og leiðtogar annarra flokka hafa fordæmt árásina.
Fundu hníf í bíl árásarmannsins
Haines er óháður þingmaður. Lögregla segir að keyrt hafi verið á hana á Toyota Landcruiser jeppa fyrir utan kjödæmisskrifstofu hennar í Wangaratta í Viktoríu-fylki klukkan hálf fjögur síðdegis að staðartíma.
43 ára karlmaður var handtekinn á vettvangi. Lögregla segir að hnífur hafi fundist í bíl hans. Ástralska alríkislögreglan rannsakar meðal annars hvort þetta var viljaverk. Lögregla telur að almenningur sé ekki í hættu.
Árásin viljaverk
Anthony Albanese, forsætisráðherra, sagði árásina hafa verið viljaverk en ástæðan sé ókunn.
„Helen Hains er einstaklega dugleg. Hún er afar greind en það sem skiptir mestu máli er að hún er einfaldlega einstaklega vönduð manneskja, full af heilindum og nýtur virðingar þvert á þingið. Allir sem kynnast henni bera virðingu fyrir henni. Hún er afar vel liðinn í samfélaginu og þetta kemur þeim því gríðarlega í opna skjöldu.“
Hann sagði hryðjuverkalögregluna einnig rannaska málið.
Albanese sagði við fjölmiðla í morgun að svo virðist sem árásin hafi verið viljaverk. „Þetta var ekki slys. Þetta var viljaverk að því er virðist. Það er ekkert pláss fyrir ofbeldi í lýðræðisríki.“
Leiðtogar stjórnmálaflokka landsins hafa fordæma árásina.