Fullyrt er í Morgunblaðinu í dag að vel hafi verið tekið í hugmyndir fasteignafélagsins Reita um uppbyggingu í Spönginni í Grafarvogi. Til stendur að byggja þar nýjar íbúðir, meira rými fyrir verslanir og þjónustu og almenningsrými. Samkvæmt fréttinni lét félagið framkvæma könnun meðal íbúa um framtíð Spangarinnar og niðurstaða hennar var sú að rétt rúmur helmingur íbúa 60 ára og eldri vilji selja stærra húsnæði til að flytja í minni íbúð, en að skortur sé á slíkum í Grafarvogi.
Skiptar skoðanir um fyrirhugaða uppbyggingu í Spönginni - „Þéttingin komin aftur á kreik?“