Aníta vakti athygli þegar hún hreppti titilinn Iðnaðarmaður ársins í vor í kosningu útvarpsstöðvarinnar X-977 og Sindra.
Íbúðin er í Úthlíð 11 í 105 hverfinu, nálægt Klambratúni. Er um að ræða þriggja herbergja rishæð í fjórbýli í hinum sívinsælu Hlíðum í Reykjavík. Skráður fermetrafjöldi er 42,3 fermetrar en gólfflötur íbúðarinnar er mun stærri en fermetrar segja til um og geymslurými er undir súð í íbúð. Ásett verð er 52,9 milljónir en á fasteignavef Vísis má nálgast nánari upplýsingar um eignina.