Tímamót eru á ferli Ragnars Jónassonar rithöfundar með útgáfu nýjustu spennusögu hans, Svartakóf, því þetta er 20. útgefna bók hans.Útgáfunni var fagnað í Safnahúsinu við Hverfisgötu í síðustu viku. Fjölmenni var og höfundurinn hafði ekki undan því að árita bækur fyrir spennta lesendur.
Fjölmenni fagnaði með ráðgátumeistaranum