Í tilkynningu frá bænum segir að ákvörðunin hafi verið tekin að undangenginni yfirferð á forsendum verkefnisins, meðal annars með hliðsjón af sjónarmiðum sem fram hafa komið í samtali við íbúa. Meirihlutinn sé samstíga í þessari ákvörðun.
„Við töldum þetta metnaðarfulla og áhugaverða hugmynd til að mæta raunverulegri þörf á húsnæðismarkaði. Við höfum hins vegar farið yfir forsendur verkefnisins í ljósi þeirra sjónarmiða sem fram hafa komið, meðal annars á íbúafundi sem við héldum um málið. Niðurstaða okkar er sú að rétt sé að falla frá áformunum. Það er eðlilegur hluti af ábyrgri ákvarðanatöku að endurmeta verkefni þegar aðstæður kalla á það,“ er haft eftir Orra Björnssyni, formanni bæjarráðs Hafnarfjarðar, í tilkynningu.
Meirihlutinn leggur þó áherslu á að sú þörf sem verkefninu var ætlað að mæta sé enn til staðar og óleyst. Það sé vel þekkt að of margir búi við þröngan kost í óleyfilegu húsnæði sem uppfylli ekki kröfur um öryggi og aðbúnað. Slíkar aðstæður séu óásættanlegar og mikilvægt að leita áfram leiða til úrbóta. Mikilvægt sé að sveitarfélög hefji samtal um það hvernig hægt sé að leysa þennan vanda.
Íbúafundur eftir undirskriftarlista
Uppbyggingin var á vegum Hafnarfjarðar og Styrkáss Fasteigna. Reisa átti 130 húseiningar með 260 íbúðum á um tíu hektara svæði rétt við Vellina. Íbúðirnar átti að nýta í að hýsa starfsfólk í verkefnatengdri vinnu.
Yfir þrjú þúsund manns skrifuðu undir undirskriftarlista á Ísland.is þar sem uppbyggingunni var mótmælt, meðal annars þar sem þarna væri verið að skerða aðkomuna að Hvaleyrarvatni. Samkomulag bæjarins og Styrkáss hafi verið gert án nokkurs samráðs og boðaði bærinn ekki til íbúafundar fyrr en eftir kynningu verkefnisins.