Fyrir á fleti er Þórdís Valsdóttir aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Ásta Sóllilja er sögð munu starfa með Þórdísi í tilkynningu frá stjórnarráðinu um ráðninguna.
Ásta Sóllilja er hæstaréttarlögmaður og vann lengi sem lögfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu. Undanfarin ár hefur hún verið lögmaður hjá ríkislögmanni. Hún er sögð verða í tímabundu leyfi frá störfum sínum hjá embættinu á meðan hún gegnir embætti aðstoðarmanns ráðherra.
Nokkur starfsmannavelta hefur verið í röðum aðstoðarmanna dómsmálaráðherra á þessu ári. Jakob Birgisson hætti í mars og sagðist þá ætla að snúa sér að uppistandi. Síðar gekkst Jakob þó við kynferðislegri áreitni í garð samstarfskonu í ráðuneytinu sem átti sér stað þegar hann var aðstoðarmaður ráðherrans.
Þórólfur Heiðar Þorsteinsson, hinn aðstoðarmaður Þorbjargar, sagði starfi sínu lausu í ágúst. Bæði hann og Jakob höfðu verið aðstoðarmenn Þorbjargar frá því fljótlega eftir að hún tók við embætti í lok árs 2024.