Prix Polar de Cognac-hátíðin hefur verið haldin í Cognac síðan 1996, er tileinkuð glæpasögum og spennutryllum og eru þar veitt verðlaun í fimm flokkum: skáldsögum, teiknimyndasögum, kvikmyndum, leikhúsi og sjónvarpi.
Sjö bækur voru tilnefndar til glæpasagnaverðlaunanna og á meðal annarra höfunda voru Shari Lapena, Johana Gustawsson og Thomas Enger, og Kelsey Cox.
Meðal fyrri verðlaunahafa eru kanónur á borð við Peter James, Camillu Läckberg, Karin Slaughter, Paulu Hawkins og Tove Alsterdal.
Það er skammt stórra högga á milli hjá Evu Björgu. Í vikunni var sjónvarpsþáttaserían Elma frumsýnd á Sjónvarpi Símans en hún er gerð eftir fyrstu bók hennar, Marrinu í stiganum.
Í næstu viku kemur svo út bókin Þau sem urðu eftir en hún markar upphafið að nýrri seríu Evu Bjargar.