Umhverfis- og orkustofnun hefur hafnað beiðni Norðurorku fyrir hönd Akureyrarbæjar um að botn Eyjafjarðar verði áfram skilgreindur sem síður viðkvæmt svæði þannig að hægt sé að halda áfram skólplosun þar í óbreyttri mynd. Að öllu óbreyttu þarf því að ráðast í að auka hreinsun á skólpinu. Byggir ákvörðun stofnunarinnar á rannsókn sem gaf til kynna að skólplosunin væri farin að hafa óæskileg áhrif á lífríkið.Bréf umhverfis- og orkustofnunar þar sem þetta er tilkynnt var tekið fyrir á fundi bæjarráðs Akureyrar fyrir helgi.
Samþykkja ekki óbreytt ástand í botni Eyjafjarðar - Skólp hafi sett mark sitt á lífríkið